þriðjudagur, maí 06, 2008

Drasl


Þvílík svínastía sem ég á heima í. Og mér finnst alveg sama hvað ég reyni að taka til og þrífa það fer allt í sama farið strax aftur. Svo það virðist vera bara eins gott að sleppa því að taka til og leifa þessu að vera allt í drasl. :oS Eða svona næstum því. Maður reynir nú að láta þetta líta út eins og mannabústaður svona inn á milli skothríða (Skothríðin er þá s.s. þegar Danný mín gengur bersersgang hérna við leik og matartíma og svona ;))

Ég er byrjuð að vinna... var ég búin að segja ykkur það kanski?? Allavega, er að leysa af sem hjúkrunarfræðingur á hjúkrunarheimili og það er bara ágætt. :)

En nóg um það, ætla að reyna henda mér í sturtu og fara svo að sofa.

Bææææææjójójójó

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
Elisa & voffarnir sagði...

Þú ættir að koma í heimsókn til mín á Bústaðarveginn ef þér líður eins og þú búir í svínastíu!!!