laugardagur, apríl 12, 2008

Ég fer í fríið

http://www.tonlist.is/Video/MusicVideo/1394/thorgeir_astvaldsson/eg_fer_i_friid/
Allir að klikka á, HÆKKA Í BOTN og syngja með!!!!
Af því ég er komin í frí :D Búin í skólanum, ekki fleiri verkefni, ekki próf, ekki neitt fyrr en aftur næsta haust. :D

Bara frábært

miðvikudagur, apríl 09, 2008

Verknám á skurð og svæfingu


er bara gaman. Þetta er rosalega spennandi að vera með í aðgerðum og spá og spegulera og svona. :) Ég er búin að sjá 2 keisara, einn sem var fyrir fram ákveðin og svo annan sem var AKÚT AKÚT. Og váví. Ég fæ bara gæsahúð af spenningi við tilhusunina. Auðvitað, sem betur fer, fór allt vel í þeim síðarnefnda en hefði vel getað farið verr. En bara spennan inni á stofunni, að sjá alla aðila gera allt nákvæmleg það sem þeir áttu að gera og hvað allt gerðist hratt. Þetta voru allt alveg þraulæfð handtök. Líka sjá fulla stofu af fólki og allir vissu uppá hár hvað varð að gera og það þurfti allt að gerast strax! Jámm alveg frábært að fá að vera viðstödd svona einu sinni. Svo hef ég líka fengið að sjá aðgerðir þar sem ekki liggur eins mikið við og þarf ekki að gerast eins hratt. Þar sem hlutinir eru gerðir af meiri yfirvegun og svona. Samt er allt þetta fólk svo þrælvant að manni finnst eins og þeir séu á fullu spani en það er kanski bara á venjulegum vinnuhraða (allavega miðað við keisarann). Mér hefur ekkert liðið illa yfir neinu, fengið að vera alveg ofan í aðgerð og glápa inn í líkamann á manneskjunni og fundist bara alltí lagi. S.s. ég er ekki mjög klíjugjörn á blóð ;) sem er fínt hehe. Svo er ég búin að setja upp nokkrar nálar svo það fer að koma allt hjá mér, en það hefur mér fundist smá erfitt. Að vera stinga aðra... skítt með að fólk stingi mig út og suður þá finnst mér voða leiðinlegt að meiða annað fólk. En dónt vorrí, bráðum fer ég að geta stundið út og suður tilfinningalaust.... hahahaha joke. ;)
Jæja nóg í bili, síðasti dagur í verknámi á morgun og svo svo smá umræðufundur á föstudag og svo aaaaaaaaaaaaallt búið. fá helgarfrí og byrja svo í minni vinnu eftir helgi... fyrsti dagurinn nánar tiltekið á þriðjudaginn. :D
Só until next :p
Tjá, moi