laugardagur, febrúar 16, 2008

Viðburðaríkur dagur

Fór í skólann
Fór í atvinnuviðtal
Fór heim og pakkaði niður (var á leiðinni til mömmu)
Sótti barnið á leikskólann
Það var hringt í mig og mér "boðin" vinna (önnur en sú sem ég fór í atvinnuviðtalið hjá
Ég keyrði úr bænum
Á síðasta hringtorginu í Mosó verður sú stutta veik og gubbar yfir sjálfa sig
Við förum til tengdó hennar mömmu og þrífum hana og skiptum um föt
Við förum aftur heim (heimsókn til mömmu frestað um óákveðin tíma)
Ætluðum að stoppa og kaupa take away, ekkert til heima til að elda, geðveikt mikið að gera svo við hættum við
Borðuðum Kornfleks í kvöldmatinn
Kallinn kemur heim með pizzu
Sú stutta skilar kornfeksinu...
Eftir að þrif fáum við okkur pizzu
Kallinn skrapp út á djammið
Sú stutta er tannburstuð og send í háttinn
10 mínútum síðar skilar hún líka pizzunni.
Það er þrifið og hún fer að sofa
Núna er klukkan orðin margt, ég á enn eftir að vaska upp og ég nenni ekki að fara læra, langar í sturtu en þori því ekki því það er pottþétt að barnið á eftir að vakna og gubba akkurat á meðan....
Er að spá í að fara að sofa....
Góðar stundir
Ég

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

jiminn eini...það er aldeilis...og hvernig er litla snúlla núna? ég vissi ekki að maður gæti fengið gubbupestina með svona stuttu millibili. var hún ekki með gubbuna í byrjun mánaðarins? en hvað með þessa vinnu sem þér var boðin? hvað er það? laun? tell me...
jæja snúllur ég bið rosalega vel að heilsa ykkur bara...