þriðjudagur, febrúar 12, 2008

Ótrúlega skrýtið

Vá þetta verður lengsta vika EVER þar sem það er bara þriðjudagur en mér finnst verka komin föstudagur strax :( úff. Og svo annað.. og það er það skrýtna, á hverju kvöldi kemur sú stund að það þarf að fara elda kvöldmatinn. Það má nokkun veginn bóka það að það verður kvöldmatur aftur á morgun EN SAMT kemur það alltaf jafnmikið á óvart þegar maður ætlar að fara elda að það sé ekkert til og ekki búið að taka neitt uppúr frysti eða versla í matinn. Oh svo um leið og uppvaskið er búið þá er eins og allt sé gleymt þar til daginn eftir korter í kvöldmat að maður vaknar upp af einhverskonar draumi og hugsar, já bíddu nú við, hvað á að vera í matinn.... Já þetta er alveg ótrúlega skrýtið....

Jæja nóg um það, prófin eru að fara byrja... fyrsta 22. feb og síðasta 29. feb. svo bara anda um helgina og beint í verknám... verð búin í því seinni part í apríl býst ég við :D
S.s. hvað á ég að fara vinna við í sumar? Eitthvað sem borgar ágætlega en ég get samt átt líf og barn!!!! Talandi um BARN úff ég þurfti að lengja leikskólann aðeins og OMG!!!! já ok ég ætti kanski að vera ræða það á opinberum vefi... en ég varð ansi pirruð allavega :Þ Þvílíkt vesen. Hvað gera foreldrar í RVK við börin sín þegar þau fara að vinna? Og hvar finn ég þessa 9-15 vinnu sem borgar almennileg laun svo maður geti komið barninu tímanlega í leikskólann og sótt hana aftur innan tímamarka?? Það tekur jú oft ansilangan tíma að keyra hérna innanbæjar..... Heyrðu ok, er þetta bara ekki orðið gott, ég er nebbla sko soldið pirruð eins og sést kansi hérna á skriftunum...
svo bara
Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics 'Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics' Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics Myspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter GraphicsMyspace Glitter Graphics, MySpace Graphics, Glitter Graphics

Engin ummæli: