föstudagur, febrúar 08, 2008

Hvað er að gerast hjá mér núna??

Hmm bara ekki neitt held ég. Ég er í skólanum (auddað) bölvað þessu veðri sem hefur verið að mínu mati hundleiðinlegt undanfarið. Trítla litla er alltaf í leikskólanum og þegar hérna heima þá er hún að verða vitlaust á plássleysinu og talar um það daglega að fara heim til vava (afi) og jæja (júlía) en þau eru bæði í sveitinni þar sem er NÓG pláss til að leika sér og FULLT af krökkum til að leika við. :) Annars er voða gaman að henni krílinu, farin að tjá sig fullt þó maður skilji reynar ekki alltaf hvað hún er að blabbla um. Ég verð að setja inn myndir af henni inn á BL á eftir. :) Prófin mín nálgast sem óð fluga núna (en það eru 2 vikur í þau upp á dag núna) svo ég þarf að fara spíta í lófana. Ég ætla samt að leyfa mér að "slæpast" á Þorrablót núna um helgina en við hjónaleysin förum ALDREI neitt að skemmta okkur svo það er komin tími til. :) Svo er ég bara að spegulera þessa dagana hvar ég vil vinna í sumar. Búin að senda eitt email og fékk jákvæð svör. Nú er bara spurningin, á ég að vinna á spítala sem sjúkraliði og sjá aksjonið og það allt eða á ég að sækjast eftir afleisingum hjúkrunarfræðings á elliheimili og fá hærri laun.....????? Já þegar stórt er spurt er fátt um svör. Allavega, ég er mikið að spá þessa dagana og skipti um skoðun á 2 tíma fresti....
Jæja nóg um langlokuna í dag. Lifið heil og það allt.
Pís át (eins og einhver sagði)
Moi!!!!!
Ps. Elsku Bjögga mín, ég vil nota tækifærið og koma á framfæri innilegum afsökunarbeiðnum frá mér að hafa gleymt að þú værir á leiðinni suður. Ég er alveg eyðilögð yfir þessu. :( Greeeennnnjjjj og snýýýýýýt

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hæj hæj...jájá auðvitað fyrirgef ég þér...fyrir löngu enda var ég nú kannski ekki aaaaalveg í ástandi til að kikka til þín hvort eð er á sunnudaginn :S
ertu semsagt búin í verknáminu á þessari önn?? eða var það ekki á undan prófunum?? hvað tekur svo við eftir þessi próf???
jæja snúlla, bið að heilsa snúllu litlu
bestu kveðjur úr sköflunum hérna fyrir norðan

Túnfífill sagði...

neibbb. próf fyrst og verknám svo :) verð búin í því einhvertímaí apríl og þá er bara að fara vinna... bara spurning við hvað ;)