Í bala :p Það var verið að taka myndir af henni og það var eiginlega ekki hægt að hafa hana kyrra á réttum stað nema troða henni í bala og segja að hún væri sjóræningi í skipi. fúff... já það getur verið erfitt að fá þessi blessuð börn til að vera kyrr og hlýða manni..... eða er það ekki annars? Eða er þetta kanski bara lélegt uppeldi hjá mér...? ;)
þriðjudagur, desember 16, 2008
þriðjudagur, maí 06, 2008
Drasl

Þvílík svínastía sem ég á heima í. Og mér finnst alveg sama hvað ég reyni að taka til og þrífa það fer allt í sama farið strax aftur. Svo það virðist vera bara eins gott að sleppa því að taka til og leifa þessu að vera allt í drasl. :oS Eða svona næstum því. Maður reynir nú að láta þetta líta út eins og mannabústaður svona inn á milli skothríða (Skothríðin er þá s.s. þegar Danný mín gengur bersersgang hérna við leik og matartíma og svona ;))
Ég er byrjuð að vinna... var ég búin að segja ykkur það kanski?? Allavega, er að leysa af sem hjúkrunarfræðingur á hjúkrunarheimili og það er bara ágætt. :)
En nóg um það, ætla að reyna henda mér í sturtu og fara svo að sofa.
Bææææææjójójójó
sunnudagur, apríl 27, 2008
laugardagur, apríl 12, 2008
Ég fer í fríið
http://www.tonlist.is/Video/MusicVideo/1394/thorgeir_astvaldsson/eg_fer_i_friid/
Allir að klikka á, HÆKKA Í BOTN og syngja með!!!!
Af því ég er komin í frí :D Búin í skólanum, ekki fleiri verkefni, ekki próf, ekki neitt fyrr en aftur næsta haust. :D
Bara frábært
Allir að klikka á, HÆKKA Í BOTN og syngja með!!!!
Af því ég er komin í frí :D Búin í skólanum, ekki fleiri verkefni, ekki próf, ekki neitt fyrr en aftur næsta haust. :D
Bara frábært
miðvikudagur, apríl 09, 2008
Verknám á skurð og svæfingu

er bara gaman. Þetta er rosalega spennandi að vera með í aðgerðum og spá og spegulera og svona. :) Ég er búin að sjá 2 keisara, einn sem var fyrir fram ákveðin og svo annan sem var AKÚT AKÚT. Og váví. Ég fæ bara gæsahúð af spenningi við tilhusunina. Auðvitað, sem betur fer, fór allt vel í þeim síðarnefnda en hefði vel getað farið verr. En bara spennan inni á stofunni, að sjá alla aðila gera allt nákvæmleg það sem þeir áttu að gera og hvað allt gerðist hratt. Þetta voru allt alveg þraulæfð handtök. Líka sjá fulla stofu af fólki og allir vissu uppá hár hvað varð að gera og það þurfti allt að gerast strax! Jámm alveg frábært að fá að vera viðstödd svona einu sinni. Svo hef ég líka fengið að sjá aðgerðir þar sem ekki liggur eins mikið við og þarf ekki að gerast eins hratt. Þar sem hlutinir eru gerðir af meiri yfirvegun og svona. Samt er allt þetta fólk svo þrælvant að manni finnst eins og þeir séu á fullu spani en það er kanski bara á venjulegum vinnuhraða (allavega miðað við keisarann). Mér hefur ekkert liðið illa yfir neinu, fengið að vera alveg ofan í aðgerð og glápa inn í líkamann á manneskjunni og fundist bara alltí lagi. S.s. ég er ekki mjög klíjugjörn á blóð ;) sem er fínt hehe. Svo er ég búin að setja upp nokkrar nálar svo það fer að koma allt hjá mér, en það hefur mér fundist smá erfitt. Að vera stinga aðra... skítt með að fólk stingi mig út og suður þá finnst mér voða leiðinlegt að meiða annað fólk. En dónt vorrí, bráðum fer ég að geta stundið út og suður tilfinningalaust.... hahahaha joke. ;)
Jæja nóg í bili, síðasti dagur í verknámi á morgun og svo svo smá umræðufundur á föstudag og svo aaaaaaaaaaaaallt búið. fá helgarfrí og byrja svo í minni vinnu eftir helgi... fyrsti dagurinn nánar tiltekið á þriðjudaginn. :D
Só until next :p
Tjá, moi

miðvikudagur, mars 26, 2008
mánudagur, mars 03, 2008
Jæja
Lítið að gerast. Ég fékk skemmtilegt email um daginn:
GOOD DAY MY GOOD FRIEND,
LET ME START BY INTRODUCING MYSEIF,
I AM MR IBRAHIM HAMZA,
AN ACCOUNTS OFFICER WITH AN AFRICA BANK IN BURKINA_FASO OF
WEST AFRICA.
I AM WRITING YOU THIS LETTER BASED ON THE LATEST DEVELOPMENT AT
MY BANK WHICH I WILL LIKE TOBRING TO YOUR PERSONAL EDIFICATON.
($9MILLION TRANSFER CLAIMS).
THIS IS ALEGITIMATE TRANSCTION AND YOU WILL BE PAID 30% FOR YOUR
for your "ASSISTANCE".IF YOU ARE INTERESTED,PLEASE WRITE BACK FOR
MORE EXPLANATION.
KIND REGARDS
MR IBRAHIM HAMZA
Jámm skemmtilegt bréf. Ég var í stuði svo ég ákvað að svara því.
Dear friend
Thank you for contacting me, but I'm very sorry I can't help you. I don't
have any money so I can't let you rob me now. ;) Maybe if I win a lottery
I'll contact you again and give you a change to steal everything from me.
Until that day I bid you to live well. I hope that God will look after
you. You and all your victims will be in my prays.
Best regards
Mr. R. U. Kiddingme
Ég hef ekki enn fengið svar til baka... kanski ég hefði átt að vanda mig betur með enskuna eða stafsetninguna....
Blessó 'n' stay hressó

miðvikudagur, febrúar 27, 2008
Er að mygla í prófum...
.... ég skal skrifa eitthvað skemmtilegt eftir þau... það er ekkert skemmtilegt að gerast hjá mér núna. ég sit bara og bý til blóðtappa í fótunum og sprengi allar augnæðar við próflestur á meðan ég vanræki krakkan minn og læt hann horfa á teikimyndir allan daginn. ...
laugardagur, febrúar 16, 2008
Viðburðaríkur dagur
Fór í skólann
Fór í atvinnuviðtal
Fór heim og pakkaði niður (var á leiðinni til mömmu)
Sótti barnið á leikskólann
Það var hringt í mig og mér "boðin" vinna (önnur en sú sem ég fór í atvinnuviðtalið hjá
Ég keyrði úr bænum
Á síðasta hringtorginu í Mosó verður sú stutta veik og gubbar yfir sjálfa sig
Við förum til tengdó hennar mömmu og þrífum hana og skiptum um föt
Við förum aftur heim (heimsókn til mömmu frestað um óákveðin tíma)
Ætluðum að stoppa og kaupa take away, ekkert til heima til að elda, geðveikt mikið að gera svo við hættum við
Borðuðum Kornfleks í kvöldmatinn
Kallinn kemur heim með pizzu
Sú stutta skilar kornfeksinu...
Eftir að þrif fáum við okkur pizzu
Kallinn skrapp út á djammið
Sú stutta er tannburstuð og send í háttinn
10 mínútum síðar skilar hún líka pizzunni.
Það er þrifið og hún fer að sofa
Núna er klukkan orðin margt, ég á enn eftir að vaska upp og ég nenni ekki að fara læra, langar í sturtu en þori því ekki því það er pottþétt að barnið á eftir að vakna og gubba akkurat á meðan....
Er að spá í að fara að sofa....
Góðar stundir
Ég

þriðjudagur, febrúar 12, 2008
Ótrúlega skrýtið
Vá þetta verður lengsta vika EVER þar sem það er bara þriðjudagur en mér finnst verka komin föstudagur strax :( úff. Og svo annað.. og það er það skrýtna, á hverju kvöldi kemur sú stund að það þarf að fara elda kvöldmatinn. Það má nokkun veginn bóka það að það verður kvöldmatur aftur á morgun EN SAMT kemur það alltaf jafnmikið á óvart þegar maður ætlar að fara elda að það sé ekkert til og ekki búið að taka neitt uppúr frysti eða versla í matinn. Oh svo um leið og uppvaskið er búið þá er eins og allt sé gleymt þar til daginn eftir korter í kvöldmat að maður vaknar upp af einhverskonar draumi og hugsar, já bíddu nú við, hvað á að vera í matinn.... Já þetta er alveg ótrúlega skrýtið....
Jæja nóg um það, prófin eru að fara byrja... fyrsta 22. feb og síðasta 29. feb. svo bara anda um helgina og beint í verknám... verð búin í því seinni part í apríl býst ég við :D
S.s. hvað á ég að fara vinna við í sumar? Eitthvað sem borgar ágætlega en ég get samt átt líf og barn!!!! Talandi um BARN úff ég þurfti að lengja leikskólann aðeins og OMG!!!! já ok ég ætti kanski að vera ræða það á opinberum vefi... en ég varð ansi pirruð allavega :Þ Þvílíkt vesen. Hvað gera foreldrar í RVK við börin sín þegar þau fara að vinna? Og hvar finn ég þessa 9-15 vinnu sem borgar almennileg laun svo maður geti komið barninu tímanlega í leikskólann og sótt hana aftur innan tímamarka?? Það tekur jú oft ansilangan tíma að keyra hérna innanbæjar..... Heyrðu ok, er þetta bara ekki orðið gott, ég er nebbla sko soldið pirruð eins og sést kansi hérna á skriftunum...
svo bara

'

föstudagur, febrúar 08, 2008
Hvað er að gerast hjá mér núna??
Hmm bara ekki neitt held ég. Ég er í skólanum (auddað) bölvað þessu veðri sem hefur verið að mínu mati hundleiðinlegt undanfarið. Trítla litla er alltaf í leikskólanum og þegar hérna heima þá er hún að verða vitlaust á plássleysinu og talar um það daglega að fara heim til vava (afi) og jæja (júlía) en þau eru bæði í sveitinni þar sem er NÓG pláss til að leika sér og FULLT af krökkum til að leika við. :) Annars er voða gaman að henni krílinu, farin að tjá sig fullt þó maður skilji reynar ekki alltaf hvað hún er að blabbla um. Ég verð að setja inn myndir af henni inn á BL á eftir. :) Prófin mín nálgast sem óð fluga núna (en það eru 2 vikur í þau upp á dag núna) svo ég þarf að fara spíta í lófana. Ég ætla samt að leyfa mér að "slæpast" á Þorrablót núna um helgina en við hjónaleysin förum ALDREI neitt að skemmta okkur svo það er komin tími til. :) Svo er ég bara að spegulera þessa dagana hvar ég vil vinna í sumar. Búin að senda eitt email og fékk jákvæð svör. Nú er bara spurningin, á ég að vinna á spítala sem sjúkraliði og sjá aksjonið og það allt eða á ég að sækjast eftir afleisingum hjúkrunarfræðings á elliheimili og fá hærri laun.....????? Já þegar stórt er spurt er fátt um svör. Allavega, ég er mikið að spá þessa dagana og skipti um skoðun á 2 tíma fresti....
Jæja nóg um langlokuna í dag. Lifið heil og það allt.
Pís át (eins og einhver sagði)
Moi!!!!!
Ps. Elsku Bjögga mín, ég vil nota tækifærið og koma á framfæri innilegum afsökunarbeiðnum frá mér að hafa gleymt að þú værir á leiðinni suður. Ég er alveg eyðilögð yfir þessu. :( Greeeennnnjjjj og snýýýýýýt

fimmtudagur, janúar 24, 2008
föstudagur, janúar 11, 2008
skólalíf
skólinn er byjaður aftur eftir jólafrí. Og núna er bara að segja í fluggírinn frá fyrsta degi... það er nú nebbla bara 6 vikur í kennslu (5 vikur þegar þetta er skrifað) og svo er bara strax próf. Ég er leið að fá ekki betri einkunnir en ég hef fengið í sumum prófum því ég er sannfærð um að ef ég reyndi betur eða hef meiri tíma í að læra þá get ég fengið hörku einkunnir. :D Og svo er þetta alveg hörku efni sem við eigum að læra núna... ég sat í tímum í þessari viku með hnút í maganum yfir hve hratt er farið yfir allt og hvað þetta virðist vera mikið... og ég er enn ekki búin að kaupa bækunar... á ekki pening í bili :s úffpúff... verðum að sjá hvernig þetta reddast allt.
Kveðja Tóta
P.s. þetta fann ég á öðru bloggi... fyndið: Hippopotomonstrosesquippedaliophobia- Fear of long words hahahahahahhaha
Kveðja Tóta
P.s. þetta fann ég á öðru bloggi... fyndið: Hippopotomonstrosesquippedaliophobia- Fear of long words hahahahahahhaha
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)