
... kaupmenn fara að hlakka til! Já í dag (kvöld) 24. september sá ég fyrstu jólaauglýsinguna í sjónvarpinu. JÁ 24. SEPT. Úff. Byrjar þetta fyrr á hverju ári sem líður eða er ég bara búin að gleyma hvernig þetta var í fyrra?? Jæja best að byrja undirbúa sig. Gera jólakortalista, jólagjafalista, finna jólaskrautið, dusta rykið af smákökuuppskriftunum áður en ég skrepp út í búð og kaupi tilbúnar smákökur. Jámm Blessuð jólin koma eins og óðfluga og það er sko margt sem þarf að gera áður en hægt er að hringja inn hátíðinar.
Blessó þangað til næst
Tóta jólasveinka
3 ummæli:
hæ hó...takk fyrir kommentið. Skondið að við skyldum báðar fjalla um jólin núna. Ég hef reyndar ekki heyrt neina jólaauglýsingu eða séð. Ég byrjaði bara allt í einu að raula jólalög. Ég held að þessi tilhlökkun sé út af því að ég ætla ekki að vera að vinna þennan des mánuð :D þá get ég einbeitt mér að jólakortum, jólagjöfum, jólakökum og jólaskrauti og svo auðvitað litla jólasveininum mínum honum Daða...við ætlum að dunda okkur eitthvað saman...rölta um bæinn og skoða jólaljósin og fá okkur heitt kakó ....OHHHH ÉG HLAKKA SVO ÓSTJÓRNLEGA MIKIÐ TIL JÓLANNA!!!
oj hvað ég öfunda þig :)
Ég held að kaupmenn byrji fyrr með hverju árinu sem líður... þeir eru svo gráðugir
Skrifa ummæli