föstudagur, mars 02, 2007

Home Sweet Home


AAAhhhh Við Trítla erum komnar heim. Loksins loksins. Jæja sælan endist nú bara fram á sunnudag en við náum að hlaða batteríin aðeins og slappa smá af saman. :o) Veitir ekki af, núna þarf maður að fara að skipta í hærri gír. Það eru að fara koma á okkur skilaverkefni núna í skólanum, og nóg er að lesa ef maður ætlar að komast yfir allt fyrir prófin. Svo áður en maður veit þá er tímin búin, prófin byrjuð og svo..... jamm, við komum aftur heim. :o) Ég var í dag að spjalla við konu um vinnuna í sumar. Verð að viðurkenna að mig hlakkar smá til að byrja vinna aftur. Ég er auðvitað búin að vera í skóla í vetur en ég hef ekki verið í vinnu síðan seint á árinu 2005. Vá skrýtin tilhugsun. Mér finnst næstum eins og ég hafi bara verð að hangsa eitthvað!!! En samt, það hefur alltaf verið nóg að gera hjá mér, ég man nú ekki eftir mörgun dauðum stundum á öllum þessum tíma. Allavega finnst mér ég ekki oft hafa tíma til að gera það sem oft þarf að gera. :o) Talandi um það, ég ætti nú þá að fara gera eitthvað að viti frekar en að blaðra hérna á veraldarvefnum.
Góðar stundir

4 ummæli:

Elisa & voffarnir sagði...

Veeelkomnar heim í sveitasæluna elskurnar:oD

Nafnlaus sagði...

Heima er best :D

Nafnlaus sagði...

sammála síðasta ræðumanni...alltaf best heima

Túnfífill sagði...

æi já get ekki sagt annað, er búin að vera ALLT OF LÍTIÐ heima í vetur, er bara alveg að mygla á þessu...