föstudagur, mars 30, 2007

Það er heimska að láta sér leiðast

Þetta sagði drengur einn við mig fyrir um 6 árum þegar ég var að þusa um hvað mér leiddist þegar ég var ein. Ég er nú yfirleitt ekki manneskja sem breytir um lífstíl einn tveir og þrír. En ég vil meina að ég sé nú opin fyrir annara manna hugarfari og svona en þessi orð hans hittu strax í mark. Og mér hefur aldrei leiðst síðan. Enda er þetta alveg rétt hjá honum. Að leiðast... hvað er það??? Að sitja bara einhverstaðar með hendur í skauti og gera ekki neitt OG LEIÐAST. Ég þarf nú ekki einu sinni lengur að vera í einhverju svaka aksjóni til að leiðast ekki. Ef maður telur sig ekki hafa neitt að gera þá þarf manni samt ekki að leiðast. Í fyrsta lagi... fólk sem leiðist, hvers vegna leiðist því? Væntanlega afþví það telur sig ekki hafa neitt að gera... ég væri nú alveg til í að hafa ekki neitt að gera í smá tíma svo ég geti þá gert allt það sem mig langar til að gera... (skildi þetta einhver?) Afþví síðan þetta var sagt við mig hef ég alltaf haft eitthvað að gera. Og það þarf ekki endilega að vera eitthvað svaka prógramm frá morgni til kvölds. Að sitja með hendur í skauti og hugsa er t.d. hægt að gera og EKKI láta sér leiðast. Í alvöru, við mannfólkið erum öll með heila, misstarfhæfan að vísu ;o) og það á bara að setja hann í gang og þá kemur þetta. Þetta er bara örlítil hugarfarsbreyting sem gerir samt svo mikið. Fólk reyndar tekur misvel í að þetta sé sagt við það beint, sumir halda kanski að ég sé að segja það heimskt... sem ég er auðvitað ekki að gera. Ef því leiðist þá er það nú bara að auglýsa það sjálft að það er ekki að nota hugan sinn allan til fullustnu. ;o) Reyndar er oft erfitt að útskýra þetta fyrir börnum, sem ég hef nú reynt nokkru sinnum á stjúpbörnunum, en hey, þau eru bara börn. Þau vonandi skilja þetta þegar þau eru eldri eins og alla hina gullmolana sem við fullorðna fólkið erum að gefa börnunum okkar en þau skilja ekki alveg.
En þið, kæru lesendur, hugsið nú um þetta alvarlega því lífið er of stutt, dýrmætt og skemmtilegt að við eyðum broti af því í vitleysu eins og láta sér leiðast. :)

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hmmm ég les nú bara út úr þessu bréfi að þér leiðist...og nennir ekki að læra!!! og hana nú. Jæja vertu nú dugleg að læra...var það ekki annars tilgangurinn með því að sleppa norður ferðinni?? að vera dugleg að læra?? haaaaaaaa?? ég á eftir að bögga þig á þessu það sem eftir er :p því eitt sinn sagði merkur maður við mig:,,það er enginn sem lærir allan sólarhringinn, allir hafa gott af því að kikka upp úr bókunum og snúa sér að öðru" þetta var sagt við mig þegar ég sagðist vera of upptekin við lærdóm til að geta mætt á lúðrasveitaræfingu :D þrátt fyrir stuttan tíma þar á þetta líka við um helgar...og ekki reyna að segja mér að þú sért svakalega dugleg að læra um helgar þegar þú ert í búðardal...
jæja nú er ég búin að ausa úr mínum fúla brunni yfir þig
hafðu það gott yfir skólabókunum um helgina

Túnfífill sagði...

haha góð. Nei mér leiðist ekki. En að leiðast og finnast eitthvað leiðinlegt er nú alveg sitthvor hluturinn. ;o) Og þegar ég skrifaði þetta var ég að taka mér pásu á leiðinlegri grein sem ég var að lesa fyrir skólan. Og já þú mátt alveg bögga mig með að svíkja þig. Ég á það svo sem alveg skilið. :( Og í þriðjalagi, ég er ekki í Bdl. Ég sendi krakkann til pabba síns og er AAAAALEIN heima hjá mömmu að læra og vinna í ritgerð í sambandi við verknámið. Og ef ég fer eitthvað um helgina þá er það í mesta lagi upp í skóla til að læra þar. ;o)
Og hafðu það líka gott um helgina :o)