Þetta sagði drengur einn við mig fyrir um 6 árum þegar ég var að þusa um hvað mér leiddist þegar ég var ein. Ég er nú yfirleitt ekki manneskja sem breytir um lífstíl einn tveir og þrír. En ég vil meina að ég sé nú opin fyrir annara manna hugarfari og svona en þessi orð hans hittu strax í mark. Og mér hefur aldrei leiðst síðan. Enda er þetta alveg rétt hjá honum. Að leiðast... hvað er það??? Að sitja bara einhverstaðar með hendur í skauti og gera ekki neitt OG LEIÐAST. Ég þarf nú ekki einu sinni lengur að vera í einhverju svaka aksjóni til að leiðast ekki. Ef maður telur sig ekki hafa neitt að gera þá þarf manni samt ekki að leiðast. Í fyrsta lagi... fólk sem leiðist, hvers vegna leiðist því? Væntanlega afþví það telur sig ekki hafa neitt að gera... ég væri nú alveg til í að hafa ekki neitt að gera í smá tíma svo ég geti þá gert allt það sem mig langar til að gera... (skildi þetta einhver?) Afþví síðan þetta var sagt við mig hef ég alltaf haft eitthvað að gera. Og það þarf ekki endilega að vera eitthvað svaka prógramm frá morgni til kvölds. Að sitja með hendur í skauti og hugsa er t.d. hægt að gera og EKKI láta sér leiðast. Í alvöru, við mannfólkið erum öll með heila, misstarfhæfan að vísu ;o) og það á bara að setja hann í gang og þá kemur þetta. Þetta er bara örlítil hugarfarsbreyting sem gerir samt svo mikið. Fólk reyndar tekur misvel í að þetta sé sagt við það beint, sumir halda kanski að ég sé að segja það heimskt... sem ég er auðvitað ekki að gera. Ef því leiðist þá er það nú bara að auglýsa það sjálft að það er ekki að nota hugan sinn allan til fullustnu. ;o) Reyndar er oft erfitt að útskýra þetta fyrir börnum, sem ég hef nú reynt nokkru sinnum á stjúpbörnunum, en hey, þau eru bara börn. Þau vonandi skilja þetta þegar þau eru eldri eins og alla hina gullmolana sem við fullorðna fólkið erum að gefa börnunum okkar en þau skilja ekki alveg.
En þið, kæru lesendur, hugsið nú um þetta alvarlega því lífið er of stutt, dýrmætt og skemmtilegt að við eyðum broti af því í vitleysu eins og láta sér leiðast. :)
föstudagur, mars 30, 2007
miðvikudagur, mars 07, 2007
Sumarfílingur

Í sól og og sumaril lalalalala..... Nei það er nú ekki svo gott að það sé komið sól og sumar. Reyndar get ég nú ekki kvartað undan veðrinu í dag, það var bara fínasta veður. Ástæðan fyrir sumarfílingnum er að ég er farin að spá í SUMARFRÍINU. :o) Jámm kanski fullsnemmt finnst sumum, en ef mar ætlar að fá sér sumarbústað þá verður maður að vera fljótur að hugsa sko. Og svo er þetta svo helvíti góð afsökun til að gera eitthvað annað en að lesa námsbækunar.... jú sko ég er að skoða sumarbústaðabæklinga og finna hentugar dagsetningar hef bara engan tíma til að lesa eitthvað lífeðlisfræðidót eða annað því umlíkt. ;o) hohohoho En jæja, ég hef svosem ekkert annað til að blaðra um, svo betra er að þeyja en að segja ekki neitt. Og því læt ég þessu lokið hér. :o)
föstudagur, mars 02, 2007
Home Sweet Home

AAAhhhh Við Trítla erum komnar heim. Loksins loksins. Jæja sælan endist nú bara fram á sunnudag en við náum að hlaða batteríin aðeins og slappa smá af saman. :o) Veitir ekki af, núna þarf maður að fara að skipta í hærri gír. Það eru að fara koma á okkur skilaverkefni núna í skólanum, og nóg er að lesa ef maður ætlar að komast yfir allt fyrir prófin. Svo áður en maður veit þá er tímin búin, prófin byrjuð og svo..... jamm, við komum aftur heim. :o) Ég var í dag að spjalla við konu um vinnuna í sumar. Verð að viðurkenna að mig hlakkar smá til að byrja vinna aftur. Ég er auðvitað búin að vera í skóla í vetur en ég hef ekki verið í vinnu síðan seint á árinu 2005. Vá skrýtin tilhugsun. Mér finnst næstum eins og ég hafi bara verð að hangsa eitthvað!!! En samt, það hefur alltaf verið nóg að gera hjá mér, ég man nú ekki eftir mörgun dauðum stundum á öllum þessum tíma. Allavega finnst mér ég ekki oft hafa tíma til að gera það sem oft þarf að gera. :o) Talandi um það, ég ætti nú þá að fara gera eitthvað að viti frekar en að blaðra hérna á veraldarvefnum.
Góðar stundir
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)