föstudagur, febrúar 02, 2007

Kvef


Það hefur nú ekkert mikið verið að gerast hjá mér undanfarið sem hægt er að skrifa um. Jú maður er alltaf bara í skólanum og þess á milli sinnir maður barni og/eða lærdómi. Ég er orðin svo þreytt. Stundum á maður nú bara erfitt með að halda sér vakandi í skólanum, sem er alveg frá. Halló ég sit oftast voða framanlega til að geta fylgst sem best með (svo er svo mikið skvaldur oft aftar í stofunni) og svo er maður alltaf að missa hausinn í borðið og alveg að fara hrjóta. Ég er viss um að einhverjir kennarar eru búnir að taka eftir þessu. Ussuss. Ég bara verð að fara finna einhverja brilljant leið að geta sofna á kvöldin voða fljótt, það gengur ekki að vera alltaf að sofna um og eftir miðnætti, vakna einu sinni til tvisvar lágmark út af barninu og svo ætla fara á fætur kl 6 og keyra í skólan og vera vakandi allan daginn. Ég er að mygla stundum. Reyndar akkúrat núna er ég ágætlega hress. Við Snúlla sváfum bara út í morgun (til hálf níu). Snúlla litla er svo kvefuð greyið, og var með svaka hita í gær að ég vildi eiginlega ekki fara í skólan í dag.

En hún virðist svo sem hressari í dag, heyri að hún er að láta ömmu sina hafa fyrir sér. En við sjáum til þegar líður á daginn. Í dag er föstudagur og ég myndi nú vera fara heim ef allt væri venjulegt en ég efast um að ég fari í dag.

Jæja nóg í bili.

2 ummæli:

Elisa & voffarnir sagði...

Ussussussuss hvað er að heyra.
Gues what... Ég var valin í skemmtinefnd fyrir næsta ár, á þorrablótinu. Ég er farin að halda að þú hafir eitthvað með þetta að gera þar sem að þú varst svo handviss um að ég yrði valin, hvern varst þú eiginlega að tala við kona!

Túnfífill sagði...

hohohoho mikill er forsjáarmáttur minn.