
Oj hvað það er svaka kalt hérna. Ég er s.s. núna heima hjá mömmu, alein heima. Allir hinir eru ýmist í vinnunni, skóla eða hjá dagmömmu. Og ég er að reyna að læra en heilafrumunar eru frosnar úr kulda. Þannig að ég fór bara að spila við vini mína hérna sem kíktu í heimsókn (sjá mynd) og við erum bara búin að skemmta okkur ágætlega ;) hehe. Annars er allt gott af okkur bara að frétta. Ég verð að viðurkenna að ég er með smá heimþrá. Ég gat ekkert farið heim þarsíðustu helgi. Skrapp svo aðeins heim á laugardegi í síðustu helgi en var lítið sem ekkert heima. Og núna bara þrái ég að fara aðeins heim og bara vera þar. Ætli við Trítla förum ekki bara svoldið snemma heim í þessari viku og reynum að ná langri helgi heima. Alveg komin tími til. Við hjónaleysin erum líka að verða svolítið þreytt á þessu fjarsambandi okkar. Hann er alveg að mygla þarna einn í sveitinni. Svo það verður vonandi smá vítamínsprauta í okkur öll ef við eigum svolítið langa helgi saman. :) En nóg af bulli í bili, ég verð að nýta tíman sem ég get og læra smá. Og svo þarf ég að fara koma mér í sturtu en ég bara kem mér ekki úr sporunum. Það er svo ROSALEGA kalt hérna og oj hvað mér verður ennþá kaldara ef ég fer í sturtu. Ég var að hækka á hitakerfinu og ég vona að það fari nú eitthvað að gerast fljótlega svo ég verði eins og snjókerling eftir sturtuna..... bbbbrrrrr (sérstaklega þar sem ég er ekki enn búin að smíða vatnslausu sturtuna sem ég ætla að finna upp)
Túnfífillinn í frostinu kveður í bili.
Túnfífillinn í frostinu kveður í bili.

