laugardagur, janúar 06, 2007

Jólin búin


Jæja þá er síðsti dagur jóla. Ég hugsa að ég leyfi nú samt jólaskrautinu að hanga uppi þar til á morgun. :) Nenni ekki neinu í dag. Við fjölskyldan skruppum austur til austur Landeyja að heimsækja föðurfólkið mitt núna í vikunni. :) Komum bara heim í gær og fórum beint í afmælisveislu svo að við erum búin að vera á fullu hingað og þangað. Svo það verður fínt að slaka aðeins á í dag. :) En vitiði bara hvað. Haldiði ekki að ég sé með streptókokka. Geðveikt stuð. Það byrjaði bara með því að ég hélt ég væri með munnangur. En svo fór munnangrið aldrei og það var fullt að rauðum blettum í kokinu á mér... geðveikt geðslegt ég veit ;) Svo ég fór og lét lækni kíkja á þetta og þá kom það í ljós að þetta var ekkert munnangur. Hehehe
Hey vitiði bara hvað. Sko í dag er 6. janúar og skólinn byrjar 11. janúar og það er ENN EKKERT SVAR KOMIÐ frá þeim. Oj hvað ég er pirruð. Og í dag er laugardagur svo það kemur ekkert í dag eða á morgun. Og þá er bara komin mánudagur 8. janúar. Þeir á skrifstofun lofa að þetta komi í síðasta lagi á miðvikudag sem er alger dásemd þar sem skólin byrjar á fimmtudaginn samkvæmt stundaskrá. Svo ég veit ekkert hvort ég eigi að kaupa bækur eða ekki. Eða ekki neitt. OOOOhhhh jæja ok, búin að pirrast yfir þessu. Látum það duga í bili.
Gleðilegan síðasta jóladag. :)

2 ummæli:

Elisa & voffarnir sagði...

Bíddu vó vó vó... mín bara farin að blogga alltí einu á fullu 8o) Gleðilegt nýtt ár já og takk fyrir það gamla. Þessar einkannir hljóta að skila sér fyrir rest. Don´t worry;o)
Luuf
Elísa

Nafnlaus sagði...

hehe hæbbs, ég er að tala við þig núna í símann híhíh langaði bara að kvitta fyrir mig ;)
Enn og aftur til hamingju með árangurinn í HÍ!!!
HVAÐ SAGÐI ÉG ÞÉR!!!!
alltaf að hlusta á Bjöggulíus sinn híhíhí
jæja bestu kveðjur,
Bjögga