mánudagur, janúar 22, 2007

Ein MEGAvæmin :)

Æi síðasta blogg var svo leiðinlegt að ég varð að flýta mér að skrifa annað til að bæta hitt upp. Jámm ég veit að það er bara ein önn eftir og ég er nú þegar byrjuð á henni þannig að þetta verður enga stund að líða. En það er ekki það sem ég ætlaði að tala um. Heldur hvað ég er búin að vera væmin í dag. :) Það er nefnilega í dag liðið alveg eitt heilt ár síðan Snúlla mín litla leit dagsins ljós.... (reynar var það kvöld rafmagnsljós þar sem við vorum inn á fæðingardeild um nótt...) Vá hvað tímin er fljótur að líða stundum. Mér finnst það hafa verið fyrir bara örskot stundu sem ég kom inn á fæðingardeildina alveg grunlaus um hvað var að fara gerast.... mér datt nefnilega ekki alveg í hug að ég væri að fara eiga strax... hélt ég myndi nú þurfa bíða aðeins lengur. Svo spennan sem umlék mann þegar maður vissi að líklega væri ekki langt í krílið. Svo þreytan og uppgjöfin þegar sársaukin var sem mestur. Þá langaði mann nú bara heim og undir sæng og klára þetta dæmi bara seinna... En það er víst ekki hægt þegar svona stendur á... Og svo gleðin og ástin sem heltók mann þegar litla krílinu var skellt upp á mallan á mér rennandi blautu og heitu. Svo lítið og skrýtið.... en samt fallegasta sjón sem ég hef á æfi minni séð. Og mér finnst hún bara verða enn fallegri með hverjum deginum sem líður. Ég og pabbi hennar störðum hugfangin á litla krílið. Ég veit ekki hvað hann hugsaði en ég grét af gleði og stolti yfir að hafa getað afrekað svona ótrúlega stórt afrek. Síðan fattaði ég alltíeinu þegar ljósan spyr ekki hvort við eigum ekki að tékka hvort þetta sé strákur eða stelpa að það var sko ekki það sem ég hafði hugsað um mest. Ég taldi ekki einu sinni fingurnar eða tærnar til að sjá hvort þær voru allar til staðar. Ég vissi bara að þetta litla kríli hvers kyns sem það var eða hve margar tær eða fingur það hefði eða hvað, að þetta var það allra besta sem Guð gæti nokkur tíma gefið mér.... og eina leiðin til að minnsta kosti jafna það er ef ég er svo lánsöm að vera blessuð með fleiri börnum síðar.
Hey þið sem eruð alveg að flippa á væmninni í mér... ég varaði ykkur þó við í upphafi og hananú. ;o)

sunnudagur, janúar 21, 2007

Ein í þunglyndi....

ooooooohhhhh þetta verður leiðinlegt blogg frá mér, bara kvart og kvein. Mér finnst það nefnilega svooooooo ööööömurlega leiðinlegt að búa á tveimur stöðum. Sorry ef það eru einhverjir sem eru ekki sammála mér, það er þá þeirra en mér finnst þetta alveg hræðilega leiðinlegt. Þurfa alltaf á sunnudögum að pakka sér saman og keyra eitthvað annað í burtu frámakanum, reyndar fæ ég að hafa krakkann en samt fúlt fyrir okkur bæði. Oj ég er svo fúl að ég nenni ekki að tala um það. Svo ég hætti bara.
Bless.
P.s. Snúlla er farin að labba :)

mánudagur, janúar 15, 2007

Komast í gírinn


Jæja

Ég held ég sé aaaalveg að detta í læraragírinn.... þetta er allt að koma. Annars hafa fyrstu dagarnir farið í að reyna fatta hvernig maður ætlar að læra það sem eftir er vetrar. Þið vitið svona skipuleggja sig og svona. Jámm nú dugir ekkert hálfkák (eða hvað sem maður segir) heldur bara harkan sex. Vera duglegur að læra... hósthósthóst... ok ég hef kanski ekki verið duglegust í heimi að læra núna síðustu daga en hey ég er að segja alveg satt með að finna gott skipulag. Ég held að þessa sé nú komið núna svo það er ekkert annað en að fara drífa í því að læra og fylgja skipulaginu. En haldiði bara hvað. Ég ætla að vera alger skussi og skrópa á föstudaginn (er hægt að skrópa ef ekki er merkt við mann....) allavega ég ætla að vera í sveitinni heima. Sú stutta þarf að fara í 12 mán skoðun og svo á hún afmæli á mánudaginn svo kanski verðum við með afmæliskaffi.... Engum boðnum enn, við höfum samband þegar allt er ákveðið ;o) hehe joke. Samt bara svo það fari ekki milli mála þá er fólki samt alveg velkomið í kaffi hvenær sem er þótt ekki sé afmælisveisla. OK!! allir með þetta á hreynu..... æi ég er bara farin að bulla. Þá er nú best að fara setja tappann í.
P.s. Þegar ég fer í verknám í hjúkrun á deild þá vona ég að ég hitti nú ekki á svona hjúkkukennara eins og á myndinni....

föstudagur, janúar 12, 2007

Skólalíf

Jájájá og yes..... nei ég er ekki að gera u know what heldur komst ég í gegnum clausus. jibbíjey. Ég komst inn svona líka glimrandi flott. Uss uss, ég hefði átt að kvarta og kveina aðeins meira eins og Bjöggsterinn sagði við mig... eða þannig. :o) Allavega ég er svaka montin af sjálfri mér að hafa gengið svona vel eins og mér gekk miðað við hvað mér fannst ganga illa í vetur að læra heima og halda mér við. Allavega núna eru fyrstu 2 skóladagarnir búnir og þessi vetur verður örugglega erfiðari en síðasti ef eitthvað er.... eða reyndar er kanski ekki hægt að bera þá saman. Núna verður svo mikið verklegt nám, og svo vettfangsnám og svoleiðis. Skila inn verkefnum og svona. Kanski mikil en vonandi jöfn vinna allan veturinn. :o) Svo er Snúlla orðin svo góð að sofna á kvöldin (allavega MIKIÐ BETRI en fyrir jól) svo að það ætti að vera auðveldara að fá námsfrið á kvöldin. Uss og vitið hvað. Ég þarf að vakna um kl 6 á morgnana til að komast í skólann á tíma en tímanir byrja oftast um kl 8:15 Jamm langur akstur fyrir þá sem búa í Hvalfirði en ætla að stunda nám í Rvk. Tek það fram að ég vakna kl. 6 svona svo ég hafi tíma til að nudda stýrunar úr augunum og borða áður en ég keyri af stað, en ég þarf að fara héðan helst ekki mikið seinna en korter í sjö til að mæta tímanlega. Umferðin inn í Rvk og í Rvk er bara geðveiki.... mar bara alltaf í einhverri umferðasultu hahahaha... joke... hey svona fyrir þá sem hafa gaman að leikjum þá er einn hérna alveg tilvalinn í stýl við bloggið: http://www.addictinggames.com/trafficjam.html

laugardagur, janúar 06, 2007

Jólin búin


Jæja þá er síðsti dagur jóla. Ég hugsa að ég leyfi nú samt jólaskrautinu að hanga uppi þar til á morgun. :) Nenni ekki neinu í dag. Við fjölskyldan skruppum austur til austur Landeyja að heimsækja föðurfólkið mitt núna í vikunni. :) Komum bara heim í gær og fórum beint í afmælisveislu svo að við erum búin að vera á fullu hingað og þangað. Svo það verður fínt að slaka aðeins á í dag. :) En vitiði bara hvað. Haldiði ekki að ég sé með streptókokka. Geðveikt stuð. Það byrjaði bara með því að ég hélt ég væri með munnangur. En svo fór munnangrið aldrei og það var fullt að rauðum blettum í kokinu á mér... geðveikt geðslegt ég veit ;) Svo ég fór og lét lækni kíkja á þetta og þá kom það í ljós að þetta var ekkert munnangur. Hehehe
Hey vitiði bara hvað. Sko í dag er 6. janúar og skólinn byrjar 11. janúar og það er ENN EKKERT SVAR KOMIÐ frá þeim. Oj hvað ég er pirruð. Og í dag er laugardagur svo það kemur ekkert í dag eða á morgun. Og þá er bara komin mánudagur 8. janúar. Þeir á skrifstofun lofa að þetta komi í síðasta lagi á miðvikudag sem er alger dásemd þar sem skólin byrjar á fimmtudaginn samkvæmt stundaskrá. Svo ég veit ekkert hvort ég eigi að kaupa bækur eða ekki. Eða ekki neitt. OOOOhhhh jæja ok, búin að pirrast yfir þessu. Látum það duga í bili.
Gleðilegan síðasta jóladag. :)

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðilegt nýtt ár

Hæhæ

Jæja hvað á ég að segja ykkur núna.... sko ég byrjaði nýja árið með stæl. 1. janúar fór ég í svaka labbitúr með svilkonu minni og hvað gerðist.. jú ég fékk þessar líka fínu blöðrur á fætunar... hahahahaha mér finnst það allavega findið. Þær eru svo heppilega staðsettar undir táberginu svo það er frekar óþægilegt að labba... en bara týbísk ég. Enn bíð ég spennt eftir einkunum mínum frá Háskólanum en þeir eru búnir að sitja sem fastast á þeim og virðast ekkert vera að flýta sér að byrta þær. Það er eins og þeim sé alveg sama þótt að maður þurfi nausynlega að fá þær sem fyrst. Sko ég þarf að vita hvort ég fæ að halda áfram og á að mæta í skólan eða ekki 11. jan. Og fjölskyldan mín vill og þarf auðvitað að vita að hvort við ætlum að búa hérna í Búðardal áfram eða ekki, mamma þarf að vita hvort hún á að passa fyrir mig eða ekki, ég þarf að vita hvort ég eigi að fara svo að leita mér að dagmömmu eða ekki ..... þannig að ansi margt veltur á því að fá að vita þessar einkunnir sem fyrst... eeeeen nei nei þeim virðist vera alveg sama um það allt. Haaa haldiði nokkuð að ég sé pirruð á að vita ekki neitt...... EEEEE JÁ ÞAÐ ER RÉTT. jæja nóg pirringur yfir einkununum. See u bara later.