miðvikudagur, desember 19, 2007

Ég stal þessum af annari bloggsíðu...

Þrír menn sátu saman og voru að monta sig af því hvernig þeir höfðu látið nýju konurnar sínar fá skyldur og verkefni heima fyrir.Sá fyrsti hafði gifst konu frá Colorado og hann hafði sagt henni að hún ætti að þvo upp og þrífa húsið. Það tók nokkra daga en á þriðja degi kom hann heim í hreint hús og uppvaskið búið og frágengið.
Annar maðurinn hafði gifst konu frá Nebraska. Hann hafði skipað konu sinni að sjá um öll þrif, uppvask og eldamennsku. Fyrsta daginn hafði ekkert gerst, annan daginn hafði það aðeins skánað og þann þriðja var húsið hreint, uppvaskið búið og svaka steik og meðlæti í matinn.
Þriðji maðurinn hafði gifst konu frá Íslandi. Hann sagði henni að hennar verk væru að halda húsinu hreinu, sjá um uppvaskið, slá garðinn, þvo þvott og elda heita máltíð í hverjum matmálstíma. Hann sagði að fyrsta daginn hefði hann ekki séð neitt, annan daginn sá hann ekki neitt en á þriðja degi minnkaði bólgan aðeins svo hann sá aðeins með vinstra auganu, nóg svo hann gat útbúið sér eitthvað að borða og sett í uppþvottavélina!

Góðar stundir
Tóta

mánudagur, nóvember 12, 2007

Brjaaaaaáááálað!!!!

Ok úff úff... Bara láta ykkur vita svo það sé á hreinu. Næsta vika verður svoooooldið mikið að gera. Sko, Dagný Dúlla er að fara byrja á leikskóla og það þýðir tatatataaaaaaaaaa AÐLÖGUNARVIKA Sem þýðir að í stað þess að skella henni til dagmömmu og sækja hana síðar fer stór hluti af deginum í að skutla henni í leikskólan... vera með henni og sækja hana ... æi þið sem hafið verið með börn í leikskóla vita hvað ég meina. Allavega, á sama tíma er ég að vinna í tveimur lífeðlisfræðiverkefnum, annað er ritgerð um nýru og ekki bara almennt um nýru heldur BARA einhvern smá hluta starfsemi þeirra. S.s. mikil vinna að finna efni um ákrif K+ á starfsemi nýru eða eitthvað álíka... fer eftir hverju okkurverður úthlutað. Hitt verkefnið verður skýrsluskil. Bæði þessi verkefni á að vinna í hóp og BY THE WAY ég er ekki með sama fólkinu í báðum hópunum. Bjögga þú kannast við svoleiðis hausverk. Allavega á meðan þessu öllu stendur er ég líka að skrifa STÓRA ritgerð sem gildir 50% á lokaeinkun í greiningu hjúkrunar.... úff púff, að öllu þessu ætla ég að vera búin fyrir 22. nóv í ALLRA SÍÐASTA LAGI. Svo eftir það fer ég til AKUREYRAR í heila helgi á árshátíð með manninum mínum og vinnunni hans. Og mun ég njóta þess.... eins og ég get miðað við að á mánudaginn eftir á ég að MÆTA Í PRÓF. Grenj! Jæja þurfti bara aðeins að pústa smá.... gott að fá smá útrás. Allavega ef þið heyrið ekki í mér alveg á næstunni þá vitið þið afhverju. :) Góða daga þangað til bara elsku fólk :)
Kveðja Tóta Taugatrekta ;)

föstudagur, nóvember 09, 2007

Ef ég væri fræg....

Spurning hvort ég fari ekki að reyna fyrir mér í Hollywood.... hehehe ;)

miðvikudagur, nóvember 07, 2007

Núna er ég komin með hálsbólgu :o(

Það getur verið voða erfitt og orkufrekt að vera með veikt barn. EN að vera sjálf veik með heilbrigt barn sem er fullt af orku og klifrar á öllu, skoðar ofan í allt og fiktar eins og hún eigi lífið að leysa. Já þaaaaaað getur verið erfitt. Ég er búin að vera eins og tuska núna undanfarna daga og það getur verið voða erfitt að hlaupa á eftir krílinu mínu. úff púff segi ég nú bara. Og ég veit ekki hvort þetta sé vegna þess að ég er veik eða hvað en mér finnst eins og hún sé búin vera sérstaklega ofvirk núna, eins og hún viti að ég hafi ekki orku til að standa í þessu og þá láti hún enn verr en vanalega. Hún er líka svo stríðn, hún hleypur inn á klósett og skellir hurðinni og ef ég hleyp ekki inn á eftir henni þá sullar hún bara í klósettinu því það er nokkuð öruggt að þá kem ég hlaupandi. Eins með ísskápin, hún er alveg brjáluð í honum. Alltaf að ná sér í mjólk, ost, lýsi eða bara hvað sem henni langar í í það skiptið. Alveg ótrúleg. Ég þarf að fara tala við umsjónamanninn hérna og spyrja hvort ég megi fá lás á ísskápin. EN hef ekki enn gert það því ég held að ísskápurinn sé að fara syngja sitt síðasta. Og ef svo er þá tími ég ekki að slæsa í barnalás á ísskápin. En nóg um það.
Eigið góða daga, og ég óska ykkur ekki hálsbólgunar minnar.... hún er EKKI skemmtileg.
Bæbæ Tóta Lasna

miðvikudagur, október 31, 2007

Búin að redda kaffinu



Jæja, ég er farin að halda það að fréttin mín um það að við eigum ekki kaffikönnu hafi fælt ansi marga frá að koma í heimsókn til okkar. Svo við erum búin að redda því. Svo þið GETIÐ FENGIÐ KAFFI þegar þið komið. ;) Hafið engar áhyggjur. :) Við fjárfestum í einni svona flottri pressukönnu sem er mjög sniðug bara segi ég. :) Svo hlakka til að sjá alla gestina sem eiga eftir að "ryðjast" hingað inn eftir þessi gleðitíðindi. :p

Bæó þar til þá

þriðjudagur, október 30, 2007

mánudagur, október 29, 2007

Ég er byrjuð í verknámi



og ég er viss um að deildakennaranum mínu líður stundum eins og þessum hérna ...

föstudagur, október 26, 2007

Trítla litla mín er lasin.

Við trítla erum bara heima núna í dag. Hún er svo lasin greyið, með svaka hita og hósta. Hefur ENGA matarlyst, ég kem bara smá mjólk ofaní hana. Vona nú að hún skáni fljótlega svo krakkagreyið þorni ekki bara alveg upp. Sjálf finnst mér ég vera eitthvað aðeins að slappast líka... kanski bara ýmindunarveiki, ;) Trítla litla gubbaði svo mikið í gær það er kanski bara allt angandi hérna og manni finnst maður vera veikur... ?? veit ekki. Allavega, ég er byrjuð í klíníska náminu sem er svaka STUÐ. hahaha joke. Allavega, nóg er af verkefnum sem fylgja því (og utan, á að fara í 2 próf á sama tíma og verklega námið er). Svo ekki dugir að blaðra hérna... verknefin skrifa sig ekki sjálf og bækunar lesa sig ekki sjálfar heldur (kanski hægt að láta verkefnin lesa og bækunar skrifa....... NEI WÓW bara komin út í eitthvað bull hérna)
Þar til næst
CJA

mánudagur, september 24, 2007

Bráðum koma blessuð jólin...


... kaupmenn fara að hlakka til! Já í dag (kvöld) 24. september sá ég fyrstu jólaauglýsinguna í sjónvarpinu. JÁ 24. SEPT. Úff. Byrjar þetta fyrr á hverju ári sem líður eða er ég bara búin að gleyma hvernig þetta var í fyrra?? Jæja best að byrja undirbúa sig. Gera jólakortalista, jólagjafalista, finna jólaskrautið, dusta rykið af smákökuuppskriftunum áður en ég skrepp út í búð og kaupi tilbúnar smákökur. Jámm Blessuð jólin koma eins og óðfluga og það er sko margt sem þarf að gera áður en hægt er að hringja inn hátíðinar.


Blessó þangað til næst

Tóta jólasveinka

þriðjudagur, september 11, 2007

Jæja
Þá erum við flutt! Húsið fyrir vestan er að mestu tómt, aðalega ryk, drulla og drasl eftir ;) já og kallinn ;) hehe, en hann var eftir í þessari viku til að klára ganga frá húsinu. Drífa og henda drasli og gera það sem á eftir að gera svo hægt sé að afhenda nýjum eigendum kotið. Svo við Sara erum bara einar hérna fyrir sunnan í bili. Við erum bara að koma okkur fyrir hérna fyrir, taka upp úr kössum og svoleiðis skemmtilegheit. :s Fyrir utan mömmu og hennar mann sem hjálpuðu okkur að bera draslið hingað upp þá kom fyrsti gesturinn í gær :D en gaman, nema ég fékk sjokk þegar dyrasíminn hrindi, er svo óvön einhverju svona bauli (fólk bara bankar og labbar inn í sveitinni).
Nóg komið í bili
Blessó og stay Hressó

föstudagur, september 07, 2007

Á leiðinni í skólann..

Í morgun kom ég keyrandi í skólan og þurfti bara að labba yfir 1 götu og 1 bílastæði áður en ég komst inn í skólann. Þetta eru kanski 2 hundruð metrar í allra mesta lagi. Á þessum stutta göngutúr mínum þurtfi ég að klofa yfir gæsaskít, sveigja fram hjá ælu og hoppa yfir hundaskít. Er það nú sem borgin býður mann velkomin. Talandi um það, þá flyt ég formlega núna um helgina. Áhugasömum um að fá tilkynningu um breytt heimilisfang og símanúmer er bent á að hafa samband við MIG t.d. með emaili eða hringja í farsíman ;o) Einnig er öllum vinum og vandamönnum boðið að koma og fá sér kaffi (þegar ég er búin að kaupa kaffikönnu, annar bara mjólk eða annað sem til verður í kotinu) og með því (mjólkurkex frá Fróni) hvenær sem leið þeirra liggur um Rvk.

Kveðja
Reykjavík 101 (jámm núna verður mar bara einhver miðbæjarrotta hohohoho)

föstudagur, maí 18, 2007

LOKSINS


Prófin búin og búið að loka skólabókunum, allavega í bili. En núna býður maður spenntur eftir einkunum. Prófin gegnu svona og svona en ég vona að ég hafi nú náð flestu. Reyndar var eitt próf sem ég fór í hálf veik og leið svo illa að ég gat varla gert neitt í prófinu. Svo ég býst alveg eins við að þurfa taka það upp aftur í ágúst. En ef ég hefði sleppti því og tekið sjúkrapróf hefði ég hvort eð er þurtf að taka það í ágúst því það er ekki boðið upp á sjúkrapróf eftir "alvöru" prófin. Skrýtið... finnst það mætti nú alveg vera sjúkrapróf í mai en ekki að maður þarf að bíða alveg fram í ágúst til að taka sjúkrapróf. Og ef maður fellur þá þarf maður að bíða í heilt ár (held ég) til að taka prófið aftur.... ja ekki nema maður megi taka prófið með clausus krökkunum í des.... veit ekki. Skrýtnar þessar prófreglur þarna í HÍ. Veit að allavega á Akureyri er boðið upp á fleiri próf en þetta.... Jæja verð að halda áfram.... er að bralla svoldið sniðugt... Hvað?? viljiði vita??? .... ussussuss forvitin má ekki vita ;) heheh joke... það kemur í ljós innan tíðar... bæ á meðan

miðvikudagur, apríl 18, 2007

Sumarið er komið...


... yeah right! Sumardekkin voru sett undir bílinn síðustu helgi... hefur annað hvort verið frost eða snjóað áhverjum morgni síðan þá... nema hvort tveggja sé. Jæja. Formlega byrjar sumarið ekki fyrr en á morgun svo veðrið fær sjens hjá mér. :) Annars er það að frétta að núna er farið að síga verulega á seinni hlutan í þessari námstíð hjá mér. Kennarar eru sveittir við að skila verkefnum og ég hef verið ágætlega sátt við þær einkunnir sem ég er að fá.... en það virðast nú flestir vera fá ágætis einkunnir. Kanski eru bara ALLIR svona klárir í bekknum ;) hehe. Svo fer nú prófaskrekkurinn góði að fara koma. Var í verklegu prófi í dag sem var ansi skemmtilegt... hehe ég var búin að vera pollróleg yfir því allan daginn en um leið og ég labbaði inn í stofuna stressaðist ég ansi mikið alltí einu og kunni ekki einu sinni íslensku lengur... en það fjaraði smátt og smátt út og undir restina var ég farin að geta tjáð mig í heilum setningum aftur en ekki bara stikkorðum og handapati. Núna um helgina er stefnt á að fara í fermingu hjá litla bróður (þó ekki þeim minnsta) og svo er bara lagst af krafti í próflestur. Fyrsta prófið er 30. apríl og það síðasta 14. maí. Svo 15. maí fer ég að vinna á sama vinnustað og mamma í 3 vikur áður en ég fer heim í Búðardal og vinna mína vinnu þar. ;) Svo það verður nóg að gera.... og sumarið stutt, ég held að skólin eigi að byrja aftur 23. ágúst. VÁ EKKI BARA AÐ SLEPPA SUMRINU. ;) joke. Já svona er lífið hjá mér þessa dagana.

Over and out!

föstudagur, mars 30, 2007

Það er heimska að láta sér leiðast

Þetta sagði drengur einn við mig fyrir um 6 árum þegar ég var að þusa um hvað mér leiddist þegar ég var ein. Ég er nú yfirleitt ekki manneskja sem breytir um lífstíl einn tveir og þrír. En ég vil meina að ég sé nú opin fyrir annara manna hugarfari og svona en þessi orð hans hittu strax í mark. Og mér hefur aldrei leiðst síðan. Enda er þetta alveg rétt hjá honum. Að leiðast... hvað er það??? Að sitja bara einhverstaðar með hendur í skauti og gera ekki neitt OG LEIÐAST. Ég þarf nú ekki einu sinni lengur að vera í einhverju svaka aksjóni til að leiðast ekki. Ef maður telur sig ekki hafa neitt að gera þá þarf manni samt ekki að leiðast. Í fyrsta lagi... fólk sem leiðist, hvers vegna leiðist því? Væntanlega afþví það telur sig ekki hafa neitt að gera... ég væri nú alveg til í að hafa ekki neitt að gera í smá tíma svo ég geti þá gert allt það sem mig langar til að gera... (skildi þetta einhver?) Afþví síðan þetta var sagt við mig hef ég alltaf haft eitthvað að gera. Og það þarf ekki endilega að vera eitthvað svaka prógramm frá morgni til kvölds. Að sitja með hendur í skauti og hugsa er t.d. hægt að gera og EKKI láta sér leiðast. Í alvöru, við mannfólkið erum öll með heila, misstarfhæfan að vísu ;o) og það á bara að setja hann í gang og þá kemur þetta. Þetta er bara örlítil hugarfarsbreyting sem gerir samt svo mikið. Fólk reyndar tekur misvel í að þetta sé sagt við það beint, sumir halda kanski að ég sé að segja það heimskt... sem ég er auðvitað ekki að gera. Ef því leiðist þá er það nú bara að auglýsa það sjálft að það er ekki að nota hugan sinn allan til fullustnu. ;o) Reyndar er oft erfitt að útskýra þetta fyrir börnum, sem ég hef nú reynt nokkru sinnum á stjúpbörnunum, en hey, þau eru bara börn. Þau vonandi skilja þetta þegar þau eru eldri eins og alla hina gullmolana sem við fullorðna fólkið erum að gefa börnunum okkar en þau skilja ekki alveg.
En þið, kæru lesendur, hugsið nú um þetta alvarlega því lífið er of stutt, dýrmætt og skemmtilegt að við eyðum broti af því í vitleysu eins og láta sér leiðast. :)

miðvikudagur, mars 07, 2007

Sumarfílingur


Í sól og og sumaril lalalalala..... Nei það er nú ekki svo gott að það sé komið sól og sumar. Reyndar get ég nú ekki kvartað undan veðrinu í dag, það var bara fínasta veður. Ástæðan fyrir sumarfílingnum er að ég er farin að spá í SUMARFRÍINU. :o) Jámm kanski fullsnemmt finnst sumum, en ef mar ætlar að fá sér sumarbústað þá verður maður að vera fljótur að hugsa sko. Og svo er þetta svo helvíti góð afsökun til að gera eitthvað annað en að lesa námsbækunar.... jú sko ég er að skoða sumarbústaðabæklinga og finna hentugar dagsetningar hef bara engan tíma til að lesa eitthvað lífeðlisfræðidót eða annað því umlíkt. ;o) hohohoho En jæja, ég hef svosem ekkert annað til að blaðra um, svo betra er að þeyja en að segja ekki neitt. Og því læt ég þessu lokið hér. :o)

föstudagur, mars 02, 2007

Home Sweet Home


AAAhhhh Við Trítla erum komnar heim. Loksins loksins. Jæja sælan endist nú bara fram á sunnudag en við náum að hlaða batteríin aðeins og slappa smá af saman. :o) Veitir ekki af, núna þarf maður að fara að skipta í hærri gír. Það eru að fara koma á okkur skilaverkefni núna í skólanum, og nóg er að lesa ef maður ætlar að komast yfir allt fyrir prófin. Svo áður en maður veit þá er tímin búin, prófin byrjuð og svo..... jamm, við komum aftur heim. :o) Ég var í dag að spjalla við konu um vinnuna í sumar. Verð að viðurkenna að mig hlakkar smá til að byrja vinna aftur. Ég er auðvitað búin að vera í skóla í vetur en ég hef ekki verið í vinnu síðan seint á árinu 2005. Vá skrýtin tilhugsun. Mér finnst næstum eins og ég hafi bara verð að hangsa eitthvað!!! En samt, það hefur alltaf verið nóg að gera hjá mér, ég man nú ekki eftir mörgun dauðum stundum á öllum þessum tíma. Allavega finnst mér ég ekki oft hafa tíma til að gera það sem oft þarf að gera. :o) Talandi um það, ég ætti nú þá að fara gera eitthvað að viti frekar en að blaðra hérna á veraldarvefnum.
Góðar stundir

þriðjudagur, febrúar 27, 2007

BRRRRRRRRrrrrrr


Oj hvað það er svaka kalt hérna. Ég er s.s. núna heima hjá mömmu, alein heima. Allir hinir eru ýmist í vinnunni, skóla eða hjá dagmömmu. Og ég er að reyna að læra en heilafrumunar eru frosnar úr kulda. Þannig að ég fór bara að spila við vini mína hérna sem kíktu í heimsókn (sjá mynd) og við erum bara búin að skemmta okkur ágætlega ;) hehe. Annars er allt gott af okkur bara að frétta. Ég verð að viðurkenna að ég er með smá heimþrá. Ég gat ekkert farið heim þarsíðustu helgi. Skrapp svo aðeins heim á laugardegi í síðustu helgi en var lítið sem ekkert heima. Og núna bara þrái ég að fara aðeins heim og bara vera þar. Ætli við Trítla förum ekki bara svoldið snemma heim í þessari viku og reynum að ná langri helgi heima. Alveg komin tími til. Við hjónaleysin erum líka að verða svolítið þreytt á þessu fjarsambandi okkar. Hann er alveg að mygla þarna einn í sveitinni. Svo það verður vonandi smá vítamínsprauta í okkur öll ef við eigum svolítið langa helgi saman. :) En nóg af bulli í bili, ég verð að nýta tíman sem ég get og læra smá. Og svo þarf ég að fara koma mér í sturtu en ég bara kem mér ekki úr sporunum. Það er svo ROSALEGA kalt hérna og oj hvað mér verður ennþá kaldara ef ég fer í sturtu. Ég var að hækka á hitakerfinu og ég vona að það fari nú eitthvað að gerast fljótlega svo ég verði eins og snjókerling eftir sturtuna..... bbbbrrrrr (sérstaklega þar sem ég er ekki enn búin að smíða vatnslausu sturtuna sem ég ætla að finna upp)
Túnfífillinn í frostinu kveður í bili.

þriðjudagur, febrúar 13, 2007

Ef ég væri uppfinningahugsuður....



... Ég var að hugsa í sturtu áðan hvað ég innilega nenti ekki að þurrka mér á eftir. Þá datt mér í hug að ef ég væri uppfinningamaður þá myndi ég finna upp sturtu sem virkaði þannig að þegar maður er búin í sturtu þá skrúfar maður bara fyrir vatnið og frá heitum blástir til að þurrka manni.... En sniðugt. :) Eða eins og í Seaquest þáttunum þá var hægt að fara vatnslausa sturtu....?man ekki alveg hvernig það virkaði, en ég held að kisa á myndinni væri sáttari við loftsturtu....hehehe Allavega, svo fannst mér þetta svo sniðugt að ég fór að spá í hvað aðrir myndu finna upp ef þeir væru uppfinnigamenn.... svo ég fann upp á því að klukka aðra bloggara og spyrja þá hvað þeir myndu finna upp. Og þið tvær, mínir helstu lesendur (þar sem ég hef nú ekki verið að auglýsa þetta blogg mitt neitt) eruð fórnarlömbin mín. HAHAHAHA svo ég er búin að klukka ykkur báðar á blogginu ykkar. Farið nú að hugsa lömbin mín. ;)

föstudagur, febrúar 02, 2007

Kvef


Það hefur nú ekkert mikið verið að gerast hjá mér undanfarið sem hægt er að skrifa um. Jú maður er alltaf bara í skólanum og þess á milli sinnir maður barni og/eða lærdómi. Ég er orðin svo þreytt. Stundum á maður nú bara erfitt með að halda sér vakandi í skólanum, sem er alveg frá. Halló ég sit oftast voða framanlega til að geta fylgst sem best með (svo er svo mikið skvaldur oft aftar í stofunni) og svo er maður alltaf að missa hausinn í borðið og alveg að fara hrjóta. Ég er viss um að einhverjir kennarar eru búnir að taka eftir þessu. Ussuss. Ég bara verð að fara finna einhverja brilljant leið að geta sofna á kvöldin voða fljótt, það gengur ekki að vera alltaf að sofna um og eftir miðnætti, vakna einu sinni til tvisvar lágmark út af barninu og svo ætla fara á fætur kl 6 og keyra í skólan og vera vakandi allan daginn. Ég er að mygla stundum. Reyndar akkúrat núna er ég ágætlega hress. Við Snúlla sváfum bara út í morgun (til hálf níu). Snúlla litla er svo kvefuð greyið, og var með svaka hita í gær að ég vildi eiginlega ekki fara í skólan í dag.

En hún virðist svo sem hressari í dag, heyri að hún er að láta ömmu sina hafa fyrir sér. En við sjáum til þegar líður á daginn. Í dag er föstudagur og ég myndi nú vera fara heim ef allt væri venjulegt en ég efast um að ég fari í dag.

Jæja nóg í bili.

mánudagur, janúar 22, 2007

Ein MEGAvæmin :)

Æi síðasta blogg var svo leiðinlegt að ég varð að flýta mér að skrifa annað til að bæta hitt upp. Jámm ég veit að það er bara ein önn eftir og ég er nú þegar byrjuð á henni þannig að þetta verður enga stund að líða. En það er ekki það sem ég ætlaði að tala um. Heldur hvað ég er búin að vera væmin í dag. :) Það er nefnilega í dag liðið alveg eitt heilt ár síðan Snúlla mín litla leit dagsins ljós.... (reynar var það kvöld rafmagnsljós þar sem við vorum inn á fæðingardeild um nótt...) Vá hvað tímin er fljótur að líða stundum. Mér finnst það hafa verið fyrir bara örskot stundu sem ég kom inn á fæðingardeildina alveg grunlaus um hvað var að fara gerast.... mér datt nefnilega ekki alveg í hug að ég væri að fara eiga strax... hélt ég myndi nú þurfa bíða aðeins lengur. Svo spennan sem umlék mann þegar maður vissi að líklega væri ekki langt í krílið. Svo þreytan og uppgjöfin þegar sársaukin var sem mestur. Þá langaði mann nú bara heim og undir sæng og klára þetta dæmi bara seinna... En það er víst ekki hægt þegar svona stendur á... Og svo gleðin og ástin sem heltók mann þegar litla krílinu var skellt upp á mallan á mér rennandi blautu og heitu. Svo lítið og skrýtið.... en samt fallegasta sjón sem ég hef á æfi minni séð. Og mér finnst hún bara verða enn fallegri með hverjum deginum sem líður. Ég og pabbi hennar störðum hugfangin á litla krílið. Ég veit ekki hvað hann hugsaði en ég grét af gleði og stolti yfir að hafa getað afrekað svona ótrúlega stórt afrek. Síðan fattaði ég alltíeinu þegar ljósan spyr ekki hvort við eigum ekki að tékka hvort þetta sé strákur eða stelpa að það var sko ekki það sem ég hafði hugsað um mest. Ég taldi ekki einu sinni fingurnar eða tærnar til að sjá hvort þær voru allar til staðar. Ég vissi bara að þetta litla kríli hvers kyns sem það var eða hve margar tær eða fingur það hefði eða hvað, að þetta var það allra besta sem Guð gæti nokkur tíma gefið mér.... og eina leiðin til að minnsta kosti jafna það er ef ég er svo lánsöm að vera blessuð með fleiri börnum síðar.
Hey þið sem eruð alveg að flippa á væmninni í mér... ég varaði ykkur þó við í upphafi og hananú. ;o)

sunnudagur, janúar 21, 2007

Ein í þunglyndi....

ooooooohhhhh þetta verður leiðinlegt blogg frá mér, bara kvart og kvein. Mér finnst það nefnilega svooooooo ööööömurlega leiðinlegt að búa á tveimur stöðum. Sorry ef það eru einhverjir sem eru ekki sammála mér, það er þá þeirra en mér finnst þetta alveg hræðilega leiðinlegt. Þurfa alltaf á sunnudögum að pakka sér saman og keyra eitthvað annað í burtu frámakanum, reyndar fæ ég að hafa krakkann en samt fúlt fyrir okkur bæði. Oj ég er svo fúl að ég nenni ekki að tala um það. Svo ég hætti bara.
Bless.
P.s. Snúlla er farin að labba :)

mánudagur, janúar 15, 2007

Komast í gírinn


Jæja

Ég held ég sé aaaalveg að detta í læraragírinn.... þetta er allt að koma. Annars hafa fyrstu dagarnir farið í að reyna fatta hvernig maður ætlar að læra það sem eftir er vetrar. Þið vitið svona skipuleggja sig og svona. Jámm nú dugir ekkert hálfkák (eða hvað sem maður segir) heldur bara harkan sex. Vera duglegur að læra... hósthósthóst... ok ég hef kanski ekki verið duglegust í heimi að læra núna síðustu daga en hey ég er að segja alveg satt með að finna gott skipulag. Ég held að þessa sé nú komið núna svo það er ekkert annað en að fara drífa í því að læra og fylgja skipulaginu. En haldiði bara hvað. Ég ætla að vera alger skussi og skrópa á föstudaginn (er hægt að skrópa ef ekki er merkt við mann....) allavega ég ætla að vera í sveitinni heima. Sú stutta þarf að fara í 12 mán skoðun og svo á hún afmæli á mánudaginn svo kanski verðum við með afmæliskaffi.... Engum boðnum enn, við höfum samband þegar allt er ákveðið ;o) hehe joke. Samt bara svo það fari ekki milli mála þá er fólki samt alveg velkomið í kaffi hvenær sem er þótt ekki sé afmælisveisla. OK!! allir með þetta á hreynu..... æi ég er bara farin að bulla. Þá er nú best að fara setja tappann í.
P.s. Þegar ég fer í verknám í hjúkrun á deild þá vona ég að ég hitti nú ekki á svona hjúkkukennara eins og á myndinni....

föstudagur, janúar 12, 2007

Skólalíf

Jájájá og yes..... nei ég er ekki að gera u know what heldur komst ég í gegnum clausus. jibbíjey. Ég komst inn svona líka glimrandi flott. Uss uss, ég hefði átt að kvarta og kveina aðeins meira eins og Bjöggsterinn sagði við mig... eða þannig. :o) Allavega ég er svaka montin af sjálfri mér að hafa gengið svona vel eins og mér gekk miðað við hvað mér fannst ganga illa í vetur að læra heima og halda mér við. Allavega núna eru fyrstu 2 skóladagarnir búnir og þessi vetur verður örugglega erfiðari en síðasti ef eitthvað er.... eða reyndar er kanski ekki hægt að bera þá saman. Núna verður svo mikið verklegt nám, og svo vettfangsnám og svoleiðis. Skila inn verkefnum og svona. Kanski mikil en vonandi jöfn vinna allan veturinn. :o) Svo er Snúlla orðin svo góð að sofna á kvöldin (allavega MIKIÐ BETRI en fyrir jól) svo að það ætti að vera auðveldara að fá námsfrið á kvöldin. Uss og vitið hvað. Ég þarf að vakna um kl 6 á morgnana til að komast í skólann á tíma en tímanir byrja oftast um kl 8:15 Jamm langur akstur fyrir þá sem búa í Hvalfirði en ætla að stunda nám í Rvk. Tek það fram að ég vakna kl. 6 svona svo ég hafi tíma til að nudda stýrunar úr augunum og borða áður en ég keyri af stað, en ég þarf að fara héðan helst ekki mikið seinna en korter í sjö til að mæta tímanlega. Umferðin inn í Rvk og í Rvk er bara geðveiki.... mar bara alltaf í einhverri umferðasultu hahahaha... joke... hey svona fyrir þá sem hafa gaman að leikjum þá er einn hérna alveg tilvalinn í stýl við bloggið: http://www.addictinggames.com/trafficjam.html

laugardagur, janúar 06, 2007

Jólin búin


Jæja þá er síðsti dagur jóla. Ég hugsa að ég leyfi nú samt jólaskrautinu að hanga uppi þar til á morgun. :) Nenni ekki neinu í dag. Við fjölskyldan skruppum austur til austur Landeyja að heimsækja föðurfólkið mitt núna í vikunni. :) Komum bara heim í gær og fórum beint í afmælisveislu svo að við erum búin að vera á fullu hingað og þangað. Svo það verður fínt að slaka aðeins á í dag. :) En vitiði bara hvað. Haldiði ekki að ég sé með streptókokka. Geðveikt stuð. Það byrjaði bara með því að ég hélt ég væri með munnangur. En svo fór munnangrið aldrei og það var fullt að rauðum blettum í kokinu á mér... geðveikt geðslegt ég veit ;) Svo ég fór og lét lækni kíkja á þetta og þá kom það í ljós að þetta var ekkert munnangur. Hehehe
Hey vitiði bara hvað. Sko í dag er 6. janúar og skólinn byrjar 11. janúar og það er ENN EKKERT SVAR KOMIÐ frá þeim. Oj hvað ég er pirruð. Og í dag er laugardagur svo það kemur ekkert í dag eða á morgun. Og þá er bara komin mánudagur 8. janúar. Þeir á skrifstofun lofa að þetta komi í síðasta lagi á miðvikudag sem er alger dásemd þar sem skólin byrjar á fimmtudaginn samkvæmt stundaskrá. Svo ég veit ekkert hvort ég eigi að kaupa bækur eða ekki. Eða ekki neitt. OOOOhhhh jæja ok, búin að pirrast yfir þessu. Látum það duga í bili.
Gleðilegan síðasta jóladag. :)

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Gleðilegt nýtt ár

Hæhæ

Jæja hvað á ég að segja ykkur núna.... sko ég byrjaði nýja árið með stæl. 1. janúar fór ég í svaka labbitúr með svilkonu minni og hvað gerðist.. jú ég fékk þessar líka fínu blöðrur á fætunar... hahahahaha mér finnst það allavega findið. Þær eru svo heppilega staðsettar undir táberginu svo það er frekar óþægilegt að labba... en bara týbísk ég. Enn bíð ég spennt eftir einkunum mínum frá Háskólanum en þeir eru búnir að sitja sem fastast á þeim og virðast ekkert vera að flýta sér að byrta þær. Það er eins og þeim sé alveg sama þótt að maður þurfi nausynlega að fá þær sem fyrst. Sko ég þarf að vita hvort ég fæ að halda áfram og á að mæta í skólan eða ekki 11. jan. Og fjölskyldan mín vill og þarf auðvitað að vita að hvort við ætlum að búa hérna í Búðardal áfram eða ekki, mamma þarf að vita hvort hún á að passa fyrir mig eða ekki, ég þarf að vita hvort ég eigi að fara svo að leita mér að dagmömmu eða ekki ..... þannig að ansi margt veltur á því að fá að vita þessar einkunnir sem fyrst... eeeeen nei nei þeim virðist vera alveg sama um það allt. Haaa haldiði nokkuð að ég sé pirruð á að vita ekki neitt...... EEEEE JÁ ÞAÐ ER RÉTT. jæja nóg pirringur yfir einkununum. See u bara later.