föstudagur, desember 29, 2006

Jóla hvað


Jæja þá eru nú helstu jóladagarnir liðnir en lífið ekki enn komið í réttar skorður :) enda ég enn vakandi og klukkan langt gengin í 1. uss uss. Allavega, við hérna höfum haft það ágæt hérna um jólin, borðað góðan mat og nammi og fitnað um þessi vanabundnu 3 kíló sem koma um hver í jól. Þá eru bara þessi 2 sem bætast á um áramótin og þá eru hátíðarkílóin 5 mætt á svæðið sem maður svo stritar við að losna við svo allt árið. :o) Annars eru áramótin ekki aaaalveg ákveðin að öðru leiti en því að við munum borða kalkún. :o) Reyndar er ég smá smeik við hvernig sú stutta á eftir að fíla gamlárskvöld, fullt af sprengingum og svoleiðis. En hún er svolítill ketlingur þegar kemur að hávaða. :oS Við verðum bara að sjá til hvernig þetta fer. En nóg um það. Látum nú þetta duga í bili.
Gleðilegt nýtt ár....þegar þar að kemur... haha joke

laugardagur, desember 09, 2006

Bloggar bara aldrei....



Jámm ég veit, það er víst eitthvað lélegt þetta blogg mitt hérna. Ég þykist vera of upptekin við annað að ég bara hef ekki tíma til að vera að einhverju bloggi :) En akkurat núna þegar ég ætti að vera að gera eitthvað allt annað ætla ég að gefa mér smá tíma og skrifa nokkrar línur. Ég er búin að vera að kúldrast hérna heima hjá mömmu nánast ein síðan á föstudag og reyna að læra og læra og læra þessaða bleeeeeessssssssuuuuðu líffærafræði. Ó my god segi ég nú bara. Ég er svo alveg HAND viss um að það eigi eftir að ganga ömurlega í þessu prófi sem verður á mánudaginn. Þetta er auðvitað bara geðveki hvað maður á að troða mikilli þekkingu í litla heilan sem er orðin stirður og gamall á stuttum tíma. púff púff. En það dugir víst ekki að væla hérna á veraldarvefnum fyrir þessu maður verður bara að troða nefinu ofan í bækunar aftur :) reyndar er ég búin að vera mikið á netinu að æfa mig að merka inn á myndir hina ýmsu hluti beina og vöðva. :) Spurning um að fá þennan á myndinni í heimsókn til að hjálpa mér ;)