Mamma átti einu sinni uppáhaldsbrandara sem var svona:
Unglingar eru eins og Jesús Kristur, þau fara ekki að heiman fyrr en þau eru þrítug og er þau gera eitthvað þá er það kraftaverk.
Ég veit ekki hvort ég geti beint líkt okkur krökkunum hennar mömmu við frelsaran sjálfan, en mamma virðirst ekki geta losnað við krakkana að heiman og þegar einn er fluttur út þá kemur bara einhver annar í staðinn. Mamma er alveg að losna við unglinsstelpunar að heiman þá kem ég bara í staðin. Og þar að auki kem ég með barnabarnið hennar með. :o) Jæja mamma lætur ýmisslegt yfir sig ganga í nafni menntunar barnana hennar. :o) Kanski vonast hún bara til að maður muni þetta þegar hún er orðin gömul og gróin og vill bara flytja inn á okkur. :o) hehe. En já eins og ég sagði þá er þetta allt í nafni menntunar minnar. Því ég er víst að fara að setjast á skólabekk. Meira að segja háskólabekk. Mamma ætlar að leyfa okkur Snúllu að vera hjá sér fram að áramótum að minnsta kosti og þar að auki ætlar hún að passa krúttuna mína á meðan ég er í skólanum að nema fræðin. ;o) Haldiði að það séu gæðin í þessari mömmu minni. :)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
1 ummæli:
hvað segiru... þú ert ekki mikið í blogginu þessa dagana?
Skrifa ummæli