mánudagur, júlí 24, 2006

Fallegur sumardagur



Vá þvílík rjómablíða í dag.

Loksins lokins segir maður nú bara. Búin að bíða lengi eftir fallegum degi, alltaf rigning og leiðindi. En svo kom hann. :) Það var svo æðislegt veður að fólk var farið að baða sig hérna í sjónum. Og auðvitað varð maður að kíkja aðeins líka þótt ég hafi nú ekki vaðið lengra útí en upp að hnjám :) En það var svolítið skemmtilegt að ég sat úti með Snúllu litlu og þá kom þessi litli fugl og settist hjá okkur. Hann sat hjá okkur í nokkra stund og hvíldi litlu vængina sína. Hann virtist bara vera nýbúin að læra að fljúga svo hann hefur bara verið svolítið þreyttur. Hann var greynilega of ungur og vitlaus til að vera hræddur við okkur Snúllu þegar hann settist hjá okkur. Bara að kjáninn ákveði ekki næst að hvíla sig hjá einhverjum ketti. :)

Engin ummæli: