Við skruppum í Reykjavíkina í dag. Kíktum í blómaval og Ikea og svoleiðis og ég var alveg veik mig langaði bara að kaupa og kaupa og kaupa. En svo keypti ég ekki neitt þarna, enda kanski vissara því þegar maður byrjar að tína í körfuna þá er oft svo erfitt að hætta. Reynar verlsuðum við í Húsasmiðjunni en það var bara fyrir flísalagninguna á forstofunni. Og veistu svo hvað, hefuru séð auglísinguna í sjónvarpinu með vaxið frá Weet?? Allavega ég keypti mér svoleiðis, voða sniðugt finnst mér bara, nema hvað þetta er svo HELV... VONT. En það er aftur á móti önnur saga. Allavega ég tók það mesta af fótleggjunum því ég var farin að geta keppt við apa í loðnukeppi á fótleggjunum. En það er mun skárra núna, þótt mér fanst þetta ekki alveg nógu vel gert hjá mér en ég var að flýta mér svo ég gæti komið þeirri litlu á bólið tímanlega. :)
En nóg af þessu í bili er farin að lúlla.
þriðjudagur, júní 20, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli