föstudagur, júní 30, 2006

Rabarbari !!

Ég er með rabarbara á heilanum þessa dagana. Eftir að hafa fengið þennan líka dýrindisrabarbaraeftirrétt hjá mákonu minni og uppskriftir hef ég lítið annað hugsað um. Og svo í dag skrapp ég út í sveit, að elta gamla geit og í leiðinni fékk ég rabarbara..... ok það var engin geit, þetta bara rímaði. Alla vega. Núna um helgina er svaka partý hjá föðurfjölskyldunni. Og ég væri alveg meira en til í að kíkja EN þá þarf ég að keyra alein (með Snúllu í aftursætinu) í minnst 3 klukkutíma bara til að komast til þeirra og svo annað eins til baka. Kallinn er nebbla á vakt núna um helgina og kemst ekki með. Og mér finnst alveg hreint HUNDLEIÐINLEGT að keyra, hvað þá að keyra svona langt ein. Símreikingurinn myndi bara snarhækka hjá mér því ég væri alltaf að hringja í fólk svo ég yrði ekki eins einmanna á veginum. Svo þar að auki (eins og þetta sé ekki nóg ástæða til að leggja af stað) þá er þetta ein helsta ferðamannahelgi ársins og ég er svo hrædd við alla vitleysingana sem eru á veginu og eru að reyna að myrða mig og barnið mitt. Já mér finnst þetta sko nefnilega vera morðtilraunir þegar þetta lið keyrir eins og veginir séu gerðir fyrir ENGA aðra en það sjálft. Og svo er eins og allt of margir séu hafnir yfir umferðareglur og hámarkshraða. Hvað er eiginlega málið?? Afhverju vill fólk ekki frekar komast örugglega á leiðarenda en eiga það á hættu að komast aldrei heim? Eða það sem verra er, drepa einhverja aðra saklausa vegfarendur... eins og mig eða Snúllu til dæmis. Já ég er GEÐVEIKT PARANOJUÐ yfir þessu. Og ég gæti haldið áfram endalaust að tala um umferðaöryggi, en ég læt þetta duga.

Engin ummæli: