Í dag bakaði ég þessa fínu köku eftir uppskrift frá Jamie Oliver :) Og hún er bara ansi góð skal ég segja þér. Algert jammí, eeeeeeeen það er bara sá galli að ég þarf að borða hana ein. Helduru ekki nebbla að kallin sé með einhvern kjánaskap.... já hann borðar ekki ber... það eru sko jarðaber og hindber inn á milli í rjómanum sem hann borðar heldur ekki. Ég meina það. Hvað er málið??? Þegar fólk segir ég borða ekki... halló það er ekki eins og ég hafi verið að bjóða upp á köku með einhverjum skordýrum á milli!!!! Só sorry en ég ÞOLI EKKI ÞEGAR ÞAÐ ER SAGT HEIMA HJÁ MÉR "ÉG BORÐA EKKI...." URRR. Sko það eru alveg til ákveðnar matartegundir sem að mér finnst ekkert rosa gott. En það er ekki þar með sagt að ég borði þær ekki. Eins og beikon, mér finnst það ekki neitt gott, samt borðaði ég beikonvafða kjúklingin sem hann eldaði um daginn. Og svo finnst mér bjúgu ekki góð, við höfum haft það í matinn afþví hann vildi það og ég borðaði það þá. Ég gæti vel nefnt fleiri hluti í þessu samhengi en ég held að ég láti þetta duga. Alla vega nú veistu það, bannað að segja ég borða ekki við mig. Og hana nú.
mánudagur, júní 05, 2006
Jamie Oliver

Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli