sunnudagur, júní 11, 2006

It's raining men...

Nei kanski ekki alveg en það rignir samt og rignir regndropum. Það er allt á floti, ég fór í göngutúr áðan með vagninn, en stoppaði í Dalakjör til að láta mig þorna og fékk mér bara að borða hamborgara. Svo þegar ég var að verða nokkuð þurr þá fór ég aftur út í rigninguna og labbaði bara heim. Ég var nefnilega bara á strigaskóm og anorak. Ef ég hefði kanski klætt mig aðeins meira eftir veðrinu þá hefði ég kanski farið í lengri göngutúr. Ég man kanski eftir því næst. ;) Æi ég veit ekki hvað ég á að segja meir, mig langar í eitthvað gott að borða í kvöldmat. Við ætluðum að grilla í dag EN ég hugsa að það verði nú lítið úr því þar sem það virðist ekki ætla að stytta upp á næstunni.
Bless bless þangað til næst.

Engin ummæli: