laugardagur, júní 03, 2006

Get ekki sofið

Halló
Ég nenni ekki að fara inn og reyna að sofna, ég veit ég get það ekki. Ég veit ekki hvað ég á að gera í þessu, það er alltaf svo rosa heitt þarna inni í herbergi en kallinn vill ekki sofa með opin glugga, og það er slökkt á ofninu og ég er hætt að sofa með sæng, sef bara með þunnt teppi en samt er allt of heitt þarna inni. Svo byllti ég mér alveg í minnst klukkutíma ef ekki 2 áður en ég næ að sofna. Voða pirrandi. Spurning hvort ég ætti að reyna bara að fara á fætur kl 7 á morgnana til að verða orðin nógu þreytt á kvöldin :) En þá er ég bara svo sybbin því að ég var búin að vaka svo mikið kvöldið áður. Uss meiri vitleysan þetta. En það er bara svona.

Engin ummæli: