föstudagur, júní 30, 2006
Rabarbari !!
Ég er með rabarbara á heilanum þessa dagana. Eftir að hafa fengið þennan líka dýrindisrabarbaraeftirrétt hjá mákonu minni og uppskriftir hef ég lítið annað hugsað um. Og svo í dag skrapp ég út í sveit, að elta gamla geit og í leiðinni fékk ég rabarbara..... ok það var engin geit, þetta bara rímaði. Alla vega. Núna um helgina er svaka partý hjá föðurfjölskyldunni. Og ég væri alveg meira en til í að kíkja EN þá þarf ég að keyra alein (með Snúllu í aftursætinu) í minnst 3 klukkutíma bara til að komast til þeirra og svo annað eins til baka. Kallinn er nebbla á vakt núna um helgina og kemst ekki með. Og mér finnst alveg hreint HUNDLEIÐINLEGT að keyra, hvað þá að keyra svona langt ein. Símreikingurinn myndi bara snarhækka hjá mér því ég væri alltaf að hringja í fólk svo ég yrði ekki eins einmanna á veginum. Svo þar að auki (eins og þetta sé ekki nóg ástæða til að leggja af stað) þá er þetta ein helsta ferðamannahelgi ársins og ég er svo hrædd við alla vitleysingana sem eru á veginu og eru að reyna að myrða mig og barnið mitt. Já mér finnst þetta sko nefnilega vera morðtilraunir þegar þetta lið keyrir eins og veginir séu gerðir fyrir ENGA aðra en það sjálft. Og svo er eins og allt of margir séu hafnir yfir umferðareglur og hámarkshraða. Hvað er eiginlega málið?? Afhverju vill fólk ekki frekar komast örugglega á leiðarenda en eiga það á hættu að komast aldrei heim? Eða það sem verra er, drepa einhverja aðra saklausa vegfarendur... eins og mig eða Snúllu til dæmis. Já ég er GEÐVEIKT PARANOJUÐ yfir þessu. Og ég gæti haldið áfram endalaust að tala um umferðaöryggi, en ég læt þetta duga.
þriðjudagur, júní 20, 2006
Reykjavík í Rigningu
Við skruppum í Reykjavíkina í dag. Kíktum í blómaval og Ikea og svoleiðis og ég var alveg veik mig langaði bara að kaupa og kaupa og kaupa. En svo keypti ég ekki neitt þarna, enda kanski vissara því þegar maður byrjar að tína í körfuna þá er oft svo erfitt að hætta. Reynar verlsuðum við í Húsasmiðjunni en það var bara fyrir flísalagninguna á forstofunni. Og veistu svo hvað, hefuru séð auglísinguna í sjónvarpinu með vaxið frá Weet?? Allavega ég keypti mér svoleiðis, voða sniðugt finnst mér bara, nema hvað þetta er svo HELV... VONT. En það er aftur á móti önnur saga. Allavega ég tók það mesta af fótleggjunum því ég var farin að geta keppt við apa í loðnukeppi á fótleggjunum. En það er mun skárra núna, þótt mér fanst þetta ekki alveg nógu vel gert hjá mér en ég var að flýta mér svo ég gæti komið þeirri litlu á bólið tímanlega. :)
En nóg af þessu í bili er farin að lúlla.
En nóg af þessu í bili er farin að lúlla.
sunnudagur, júní 11, 2006
It's raining men...
Nei kanski ekki alveg en það rignir samt og rignir regndropum. Það er allt á floti, ég fór í göngutúr áðan með vagninn, en stoppaði í Dalakjör til að láta mig þorna og fékk mér bara að borða hamborgara. Svo þegar ég var að verða nokkuð þurr þá fór ég aftur út í rigninguna og labbaði bara heim. Ég var nefnilega bara á strigaskóm og anorak. Ef ég hefði kanski klætt mig aðeins meira eftir veðrinu þá hefði ég kanski farið í lengri göngutúr. Ég man kanski eftir því næst. ;) Æi ég veit ekki hvað ég á að segja meir, mig langar í eitthvað gott að borða í kvöldmat. Við ætluðum að grilla í dag EN ég hugsa að það verði nú lítið úr því þar sem það virðist ekki ætla að stytta upp á næstunni.
Bless bless þangað til næst.
Bless bless þangað til næst.
miðvikudagur, júní 07, 2006
Í heimsókn
Já ég og Snúlla litla skelltum okkur í Hvalfjörðin til að heimsækja ömmu...(sko mömmu mína en ömmu hennar Snúllu) Allavega, veðrið er ekkert rosa skemmtilegt en það er víst ekki hægt að stjórna því. Í gær fór Snúlla í bað á eldhúsborðinu hjá mömmu... hehhe svolítið skondið að sjá það. Og í dag er Stóra litla Frænka í pössun hjá ömmu. :) Þannið að það verður svolítið spennandi að sjá þær frænkunar saman í dag. En nóg um það í bili, ég biðst bara afsökunar á að hafa látið mig hverfa með kökuna og ég læt þetta ekki gerast aftur næst þegar ég baka köku :) Bless á meðan
mánudagur, júní 05, 2006
Jamie Oliver
Í dag bakaði ég þessa fínu köku eftir uppskrift frá Jamie Oliver :) Og hún er bara ansi góð skal ég segja þér. Algert jammí, eeeeeeeen það er bara sá galli að ég þarf að borða hana ein. Helduru ekki nebbla að kallin sé með einhvern kjánaskap.... já hann borðar ekki ber... það eru sko jarðaber og hindber inn á milli í rjómanum sem hann borðar heldur ekki. Ég meina það. Hvað er málið??? Þegar fólk segir ég borða ekki... halló það er ekki eins og ég hafi verið að bjóða upp á köku með einhverjum skordýrum á milli!!!! Só sorry en ég ÞOLI EKKI ÞEGAR ÞAÐ ER SAGT HEIMA HJÁ MÉR "ÉG BORÐA EKKI...." URRR. Sko það eru alveg til ákveðnar matartegundir sem að mér finnst ekkert rosa gott. En það er ekki þar með sagt að ég borði þær ekki. Eins og beikon, mér finnst það ekki neitt gott, samt borðaði ég beikonvafða kjúklingin sem hann eldaði um daginn. Og svo finnst mér bjúgu ekki góð, við höfum haft það í matinn afþví hann vildi það og ég borðaði það þá. Ég gæti vel nefnt fleiri hluti í þessu samhengi en ég held að ég láti þetta duga. Alla vega nú veistu það, bannað að segja ég borða ekki við mig. Og hana nú.
Orðin einhver nátthrafn
Þetta er nú meira lífernið á mér. Ég vaki alltaf fram eftir öllu. Uss uss. En málið er að þetta er svona eini tíminn sem mér finnst ég eiga sjálf. Skiluru? Á daginn er ég auðvitað alltaf með Snúllu litlu mína sem er alveg dásamlegt, en það er líka gott að eiga tíma fyrir sjálfan sig (heyriru það góða.... átt þú tíma fyrir sjálfa þig??) Allavega minn tími er kanski ekki á besta tíma sólarhringsins en hann er þó til. En ég ætla nú samt ekki að fara að leggja þetta í vana minn að vaka alltaf langt fram eftir.... það er svo óhollt. T.d. verð ég alltaf svo svöng og þá fer maður að narta í eitthvað og það er auðvitað ekki gott fyrir líkaman og línunar if you know what I meen :) Svona er það bara
laugardagur, júní 03, 2006
Get ekki sofið
Halló
Ég nenni ekki að fara inn og reyna að sofna, ég veit ég get það ekki. Ég veit ekki hvað ég á að gera í þessu, það er alltaf svo rosa heitt þarna inni í herbergi en kallinn vill ekki sofa með opin glugga, og það er slökkt á ofninu og ég er hætt að sofa með sæng, sef bara með þunnt teppi en samt er allt of heitt þarna inni. Svo byllti ég mér alveg í minnst klukkutíma ef ekki 2 áður en ég næ að sofna. Voða pirrandi. Spurning hvort ég ætti að reyna bara að fara á fætur kl 7 á morgnana til að verða orðin nógu þreytt á kvöldin :) En þá er ég bara svo sybbin því að ég var búin að vaka svo mikið kvöldið áður. Uss meiri vitleysan þetta. En það er bara svona.
Ég nenni ekki að fara inn og reyna að sofna, ég veit ég get það ekki. Ég veit ekki hvað ég á að gera í þessu, það er alltaf svo rosa heitt þarna inni í herbergi en kallinn vill ekki sofa með opin glugga, og það er slökkt á ofninu og ég er hætt að sofa með sæng, sef bara með þunnt teppi en samt er allt of heitt þarna inni. Svo byllti ég mér alveg í minnst klukkutíma ef ekki 2 áður en ég næ að sofna. Voða pirrandi. Spurning hvort ég ætti að reyna bara að fara á fætur kl 7 á morgnana til að verða orðin nógu þreytt á kvöldin :) En þá er ég bara svo sybbin því að ég var búin að vaka svo mikið kvöldið áður. Uss meiri vitleysan þetta. En það er bara svona.
fimmtudagur, júní 01, 2006
hæhæ
nei nei ég var ekkert hætt.
eins og ég sagið í komenti til þá þá var ég ekki búin að fara á netið í nokkra daga. Í morgun fór ég til Svölu því að það var mömmumorgun í dag. Eða reynda ætti ég að segja frekar mömmumorgun eins og einhver sagði því að við vorum þar stóran hluta úr deginum. Ansi gaman að kíkja svona aðeins og hitta hinar mömmunar sem eru að hugsa nánast það sama og maður sjálfur um þessi litlu kríli :)
En talandi um kríli, ég ætla að reyna að koma dömunni í háttinn :)
see u later
bæbæ
p.s. ég sá hvað þú varst dugleg heima hjá þér, nenniru ekki að koma og þrífa hjá mér það er ALLT Í DRASLI OG RYKI
;)
eins og ég sagið í komenti til þá þá var ég ekki búin að fara á netið í nokkra daga. Í morgun fór ég til Svölu því að það var mömmumorgun í dag. Eða reynda ætti ég að segja frekar mömmumorgun eins og einhver sagði því að við vorum þar stóran hluta úr deginum. Ansi gaman að kíkja svona aðeins og hitta hinar mömmunar sem eru að hugsa nánast það sama og maður sjálfur um þessi litlu kríli :)
En talandi um kríli, ég ætla að reyna að koma dömunni í háttinn :)
see u later
bæbæ
p.s. ég sá hvað þú varst dugleg heima hjá þér, nenniru ekki að koma og þrífa hjá mér það er ALLT Í DRASLI OG RYKI
;)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)